Samkvæmt upplýsingum slökkviliðinu er um að ræða eld í flutningstæki, eldurinn er afmarkaður við tækið og hefur ekki náð að breiða úr sér.
Tveir bílar voru sendir á vettvang. Þeir eru að störfum. Ekki hefur verið tilkynnt um slys á fólki.
Fréttin uppfærð 12:59.
Lárus Steindór Björnsson varðstjóri hjá slökkviliðinu segir í samtali við Vísi að erfitt hafi verið að komast að flutningstækinu sem um ræðir. Það sé notað til að flytja fljótandi málm úr kerskála.
Slökkviliðið sé nú að vinna að því að rúlla tækinu út úr húsi til að auðvelda sér slökkvistörf. Segist Lárus ekki eiga von á því að slökkvistörf muni taka langan tíma, um korter sé eftir af slökkvistörfum. Fimmtán slökkviliðsmenn á tveimur dælubílum hafi komið að verkefninu.