Þetta segir veðurfræðingur á Veðurstofunni í daglegri hugleiðingu sinni. Að hans sögn er vaxandi lægð skammt vestur af Hvarfi, syðsta oddi Grænlands, sem nálgast landið á morgun.
Það verður því suðaustanátt og væta með sunnan- og vestanlands en annars bjartviðri. Annað kvöld bætir svo í vind og úrkomu. Víða verður hvassviðri seint um kvöldið og sums staðar talsverð rigning aðfaranótt mánudags.
Veðurhorfur á landinu næstu daga
Á sunnudag:
Hægt vaxandi suðaustanátt, 8-15 m/s síðdegis en hægari norðaustanlands. Stöku skúrir, en þurrt og bjart á Norðurlandi. Hvessir um kvöldið og fer að rigna sunnanlands. Hiti 5 til 10 stig.
Á mánudag:
Sunnan 8-13 m/s og víða rigning, en hægari seinnipartinn og styttir upp á Norður- og Austurlandi. Hiti 5 til 10 stig.
Á þriðjudag:
Breytileg átt 3-8 m/s og rigning eða slydda. Hiti 2 til 8 stig.
Á miðvikudag:
Fremur hæg suðlæg eða breytileg átt og lítilsháttar skúrir, en rigning eða slydda norðan- og austantil. Heldur kólnandi.
Á fimmtudag:
Norðaustlæg eða breytileg átt og úrkomulítið, en rigning á Suðausturlandi. Hiti 0 til 7 stig, mildast syðst
Á föstudag:
Útlit fyrir suðvestlæga átt með skúrum eða slydduél, en þurrt á austanverðu landinu.