Umboðsmaður alþingis telur ekki tilefni til að halda áfram meðferð kvörtunar sem maður nokkur lagði fram vegna andláts dóttur hans á sjúkrahúsi í ónefndu ríki. Kvartaði faðirinn yfir vinnubrögðum Sjúkratrygginga Íslands og heilbrigðisráðuneytisins í málinu, en það var fyrrnefnda stofnunin sem sendi dóttur mannsins til meðferðar á sjúkrahúsinu.
Kvartaði yfir Sjúkratryggingum og heilbrigðisráðuneytinu vegna andláts dóttur sinnar á erlendu sjúkrahúsi - Alma beðin um almennar upplýsingar vegna málsins