Kostnaður við íþróttaiðkun barna getur hlaupið á hundruðum þúsunda á ári, samkvæmt úttekt ASÍ.
Þegar fleira en eitt barn er á heimilinu og börnin stunda fleiri en eina íþrótt getur samanlagður kostnaður orðið mikill.
Auk æfingagjalda þarf að standa straum af kostnaði vegna móta, útbúnaðar og ferðalaga. Ofan á það leggja sumir foreldrar í mikinn aukakostnað við séræfingar barna sinna.
Hafrún Kristjánsdóttir, prófessor og deildarforseti við íþróttafræðideild Háskólans í Reykjavík, segir kröfur foreldra oft geta verið íþróttafélögum íþyngjandi.
Æfingagjöld standa ekki undir rekstri starfsins
Tugþúsunda munur getur verið á æfingagjöldum félaga fyrir jafngömul börn og kostnaður eykst oft með aldri og auknum kröfum.
Hafrún segir að hjá mörgum félögum dugi tekjur af æfingagjöldum þó ekki fyrir rekstri barna- og unglingastarfs.
Raunkostnaður sé mun hærri en æfingagjöldin segja, ein og sér.
Æfingagjöldin fara meðal annars í kaup á búnaði og laun þjálfara.
„Við viljum hafa menntaða þjálfara á Íslandi og það er gerð krafa um það.“
Hafrún segir menntunarstig þjálfara vera hærra hér á landi en víða annars staðar. Þjálfarar séu þó langt frá því að vera hálaunastétt.
„Þeir vinna ekki á heppilegum tímum og mikið á kvöldin og um helgar. Og það er áreiti á þeim.“
Tilraunir Vals féllu í grýttan jarðveg hjá foreldrum
Hafrún segir það vera tilraunarinnar virði að gera breytingar á uppbyggingu skipulagðs íþróttastarfs barna.
Fyrir nokkrum árum var gerð tilraun hjá Knattspyrnufélaginu Val í Reykjavík. Þá var ákveðið að yngstu iðkendurnir æfðu handbolta, körfubolta og fótbolta í bland.
„Það féll í grýttan jarðveg hjá foreldrum á þeim tíma,“ segir Hafrún.
Valur hélt því ekki áfram með þá tilraun og hvarf aftur til fyrra fyrirkomulags.
Hafrún segir að kröfur foreldra um gæði þjálfunar og fjölda æfinga geti oft verið íþyngjandi, bæði gagnvart íþróttafélögunum og svo með aukinni eftirspurn eftir aukaæfingum og afreksvæðingu.
Að mati hennar á afreksþjálfun ekki að hefjast fyrr en eftir tólf ára aldur.
Eru kröfur foreldra komnar fram úr góðu hófi hjá yngri iðkendum?
„Alls ekkert allra, en jú, sumra, alveg klárlega. Það er einhver misskilningur um að meira sé betra. Það er ekki þannig. Það er engin fylgni milli þess hve oft þú æfir þegar þú ert sjö ára og hversu margar aukaæfingar þú ferð á og hversu góður þú verður sem fullorðinn einstaklingur.“
Hafrún segir mikla pressu á æfingar og aukaæfingar frekar valda brottfalli úr íþróttum.
„Sumir foreldrar hafa mjög mikinn metnað fyrir börnunum sínum, vilja að þau æfi mikið og fái mjög sérhæfða þjónustu. Það byggir allt á góðum hug en kannski ekki alltaf skilningi á hvað skiptir máli í íþróttum barna og unglinga.“
Erum komin út í öfgar með keppnum og mótum
Hafrún segir það hennar ósk að íþróttir barna yngri en tólf ára séu fyrst og fremst skemmtun. Börnum sé kennt að hreyfa sig, hafa gaman og að ekki verði mikil áhersla á keppni.
„Ég held að við séum komin út í öfgar hvað varðar fjölda keppna, móta og leikja í yngstu flokkunum. Þetta er of mikið held ég.“
Hafrún vill að áhersla sé lögð á að íþróttir séu skemmtilegar og að börn fái frelsi til að prófa eins margar íþróttir og þau vilja.
„Og að við afreksvæðum ekki ung börn.“
Hafrún vill að börn hafi möguleika á að æfa fótbolta án þess að þurfa að mæta á æfingu fjórum sinnum í viku. Betra væri að börn gætu æft fjölbreyttar íþróttir og mætt á eina æfingu í viku í hverri þeirra.
„Og það myndi ekki kosta þau sæti í byrjunarliði í næsta leik.“
Ekkert barn þarf þessar markaðssettu aukaæfingar
Fjárhagsleg staða foreldra getur komið í veg fyrir þátttöku barna í íþróttum.
Dæmi eru um að þjálfarar hjá íþróttafélögum á höfuðborgarsvæðinu hafi greitt mótsgjöld iðkenda úr eigin vasa vegna þess að foreldrar hafa ekki haft ráð á því.
Enn fleiri dæmi eru um að iðkendur taki ekki þátt í mótum eða skipulögðu íþróttastarfi vegna fjárhagsstöðu foreldra.
Hjá Leikni í Reykjavík komust tíu iðkendur af 40 á N1-mótið á Akureyri í fyrra vegna þess að foreldrar höfðu ekki fjárhagslega burði til að greiða mótsgjöldin.
Hafrún segir það mikilvægt að öllum börnum sé kleift að stunda sína íþrótt. Fjáröflun félaga og foreldrafélaga eigi að geta staðið undir einu gistimóti á ári.
Það sé gaman og mikil upplifun fyrir börn að fá að fara á slík mót en það þurfi að vera í hófi.
„Þegar þú þarft hins vegar að safna fyrir þremur gistimótum og einni utanlandsferð er það kannski annað mál.“
Börn allt niður í sex ára geta svo mætt á kostnaðarsamar aukaæfingar, bæði hérlendis og erlendis, í fjölda íþróttagreina, svo sem í fótbolta, dansi, fimleikum, körfubolta og handbolta.
Bæði foreldrar og börn geta upplifað þrýsting á að taka þátt í sem flestu, með neikvæðum afleiðingum.
„Það þarf ekkert barn þetta, yngstu börnin. Það er alveg nóg fyrir litla krakka að æfa bara hjá þínu íþróttafélagi,“ segir Hafrún.