Frestur til að skila inn umsögnum og athugasemdum við frumvarp atvinnuvegaráðherra um nýtt náttúru- og innviðagjald rann út 7. október. Alls bárust 35 umsagnir, langflestar neikvæðar. Sveitarfélög á Suðurlandi benda meðal annars á að ósanngjarnt sé að gjald sem þetta sé eingöngu lagt á ferðamenn sem fara Gullna hringinn.
Ferðaþjónustufyrirtæki á borð við Icelandair, Friðheima og Arctic Adventures eru mjög gagnrýnin og Samtök ferðaþjónustunnar, SAF, leggjast alfarið gegn frumvarpinu.
Áður hefur verið fjallað um þessa fyrirhuguðu gjaldtöku í Speglinum en rifja má upp að eingöngu erlendir ferðamenn sem heimsækja Þingvelli, Gullfoss eða Geysi eiga að greiða gjaldið, 4.500 krónur yfir háannatímann en annars 3.000 krónur. Þau sem eru með skattalega heimilisfesti á Íslandi eru undanþegin gjaldinu.
Af umsögnunum 35 er umsögn Samtaka ferðaþjónustunnar ítarlegust, alls 39 blaðsíður að lengd.
Líkur á að gjaldið standist ekki EES-samninginn
Í umsögn Samtaka ferðaþjónustunnar eru færð ýmis rök gegn gjaldtökunni. Meðal annars er bent á að verulegar líkur séu á að gjaldið standist ekki EES-samninginn. Ekki hafi verið sýnt fram á þörf fyrir nýjan skatt sem dragi þar að auki verulega úr samkeppnishæfni ferðaþjónustunnar.
Spegillinn ræddi við Jóhannes Þór Skúlason, formann Samtaka ferðaþjónustunnar, um náttúru- og innviðagjald sem á að taka gildi 1. maí og skila ríkissjóði 6,7 milljörðum á ári.
Jóhannes benti á að ferðaþjónustan skili rúmlega 200 milljörðum króna á ári í opinber gjöld. „Hlutverk atvinnugreina í samfélaginu er að skila arði og ýta undir lífskjör. Og þetta erum við mjög ánægð með að gera.“ Ekki séu forsendur eða ástæður til að auka enn frekar skattheimtuna.
Greiða 173 þúsund í skatta í sjö daga ferð um Ísland
Í umsögninni er birt svonefnt raunhæft dæmi um skattgreiðslur ferðamanna sem hingað koma í sjö nátta ferð um Ísland. Tekið er dæmi af bandarísku pari sem dvelur hér í sjö nætur í júlí, leigir bílaleigubíl, fer Gullna hringinn og ekur hringveginn, gistir á hótelum og kaupir afþreyingu og veitingar. Alls greiðir parið um 173 þúsund krónur í skatta og gjöld í ferðinni, þar af renni um 157 þúsund krónur til ríkisins.
Jóhannes bendir á að gjaldtaka á ferðaþjónustu sé að aukast verulega, ekki aðeins vegna náttúru- og innviðagjaldsins heldur líka meðal annars vegna fyrirhugaðrar hækkunar á virðisaukaskatti á baðlón.
Samtökin hafi bent á að það séu til betri leiðir til að auka tekjur ríkissjóðs af greininni en að auka beina skattheimtu. Þær snúist um að efla ferðaþjónustuna og auka verðmætasköpun – án þess að fjölga endilega ferðamönnum.
Hann bendir á að ef það takist að fá 30% ferðamanna til að dvelja einni nótt lengur á Íslandi skili það um sex milljörðum í auknar skatttekjur til ríkissjóðs.
Hefur áhrif á tugi fyrirtækja
Samtök ferðaþjónustunnar, líkt og ýmsir aðrir, gera athugasemdir við að gjaldið taki aðeins til þeirra sem fara Gullna hringinn en aðrir ferðamenn – sem valdi jafnmiklu álagi á innviði – sleppi við gjaldið. Þá geti gjaldtakan haft mjög mikil staðbundin áhrif, bæði á einstaka ferðamannastaði og þau sem reka ferðaþjónustu á þessum slóðum. Jóhannes segir að ferðaþjónustufyrirtækin á Gullna hringnum og nágrenni skipti mörgum tugum – fjöldinn teygi sig mögulega yfir eitt hundrað – og gjaldið geti haft neikvæð áhrif á þau öll.
Bæði stór og smá fyrirtæki væru til dæmis með ýmsan rekstur inni í Þingvallaþjóðgarði og á því svæði sem Gullhringurinn hringi sig um.
Í umsögn Samtaka ferðaþjónustunnar eru einnig gerðar ýmsar athugasemdir við forsendur frumvarpsins. Skattar og gjöld sem ferðaþjónustan greiði séu vanmetin en kostnaðurinn ofmetinn. Þá miði ráðuneytið við að hér séu að jafnaði 60 þúsund ferðamenn á dag en SAF segir fjöldann vera nær 45 þúsundum.
Þá benda samtökin á að engin trygging sé fyrir því að fjárhæðin, sem gjaldinu er ætlað að skila til ríkissjóðs, renni til verkefna sem snúa að uppbyggingu ferðamannastaða eða að því að efla ferðaþjónustuna, svo sem með markaðssetningu. Bent er á að þótt gert sé ráð fyrir að ríkissjóður fái fimm milljarða í tekjur vegna gjaldsins strax á næsta ári sjáist þess engin merki í fjárlagafrumvarpinu að auka eigi útgjöld til innviðauppbyggingar eða ferðaþjónustu á næsta ári.
Höfrungahlaup nýrra skatta eyðileggur samkeppnishæfni
Jóhannes segir að það sé algengur misskilningur að ferðamenn greiði ekki kostnað vegna innviða – það geri þeir nú þegar, bæði í gegnum virðisaukaskattskerfið og með sértækri gjaldtöku. Þá hafi tekjur af þeim sérstöku gjöldum og sköttum sem lagðir eru á ferðamenn aðeins skilað sér í litlum mæli til þeirra málaflokka sem þeim er ætlað að fjármagna.
Talað sé um að fjármagna uppbyggingarverkefni sem séu nauðsynleg vegna fjölda starfsemi ferðaþjónustunnar. Vandinn sé að í stað þess að nýta fjármagn sem skili sér frá ferðaþjónustu til að ráðast í þessi verkefni er frekar sagt að það þurfi að leggja á nýjan skatt. „Svo líða nokkur ár og enginn skilur hvers vegna þessir peningar hafa ekki skilað sér til verkefnanna og þá þarf aftur að leggja á nýjan skatt til að ná inn þessum tekjum. Og þetta er höfrungahlaup sem getur einfaldlega ekki gengið til lengdar vegna þess að það eyðileggur á endanum, og er byrjað nú þegar, að eyðileggja samkeppnishæfni ferðaþjónustunnar,“ segir Jóhannes.