Hlébarðinn Pan Babobao í dýragarðinum í Panzhihua í Kína hefur vakið mikla eftirtekt að undanförnu fyrir holdarfar sitt. Dýragarðsverðirnir segja hann of gamlan til að fara í megrun og því fái hann einfaldlega bara að vera „gamall, feitur og hamingjusamur.“Breska blaðið The Sun greinir frá þessu.Hlébarðar eru vanalega ekki mjög feitlagin dýr en hinn 19 ára Pan Baobao í Panzhihua dýragarðinum í suðvesturhluta Kína er þar undantekning. Eins og myndir sýna er hann í góðum holdum og er algjört krútt.
Hlébarði of gamall til að fara í megrun – Fær að vera feitur og hamingjusamur