Tjörneshreppur er fámennasta sveitarfélag landsins með 54 íbúa. Innan við 100 íbúar eru í tveimur öðrum sveitarfélögum. Í Árneshreppi búa 60 og í Skorradalshreppi 72.
Tjörneshreppur er í Suður-Þingeyjarsýslu, umlukinn sveitarfélaginu Norðurþingi. Tjörnesingar sögðu sig úr Sambandi íslenskra sveitarfélaga og Eyþingi (nú SSNE) árið 2019, í táknrænum mótmælum við áformum um lágmarksíbúafjölda í hverju sveitarfélagi.
Vildu skila framlagi Jöfnunarsjóðs
Tjörneshreppur fékk ríflega 247 milljónir króna úr Jöfnunarsjóði sveitarfélaga 2025 í svokallað fólksfækkunarframlag. Það var eina sveitarfélagið sem uppfyllti skilyrði um fólksfækkun þrjú ár í röð og fékk því allan sjóðinn.
Tjörnesingar vildu skila peningunum en fengu það ekki. Til þess hefði þurft lagabreytingu og því má segja að þeir hafi setið uppi með peningana, rúmlega 4,5 milljónir á hvern íbúa. Þeir töldu þetta hafa slæm áhrif á ímynd sveitarfélagsins og að fjárhagsstaðan væri góð, sveitarfélagið svo gott sem skuldlaust og árleg rekstrargjöld þess vel undir 100 milljónum króna. Um síðustu áramót átti Tjörneshreppur tæplega 400 milljónir á banka.
Æ síðan hafa Tjörnesingar velt fyrir sér hvernig eigi að nota féð og Aðalsteinn J. Halldórsson sagði í fréttum RÚV í mars að hugmyndin væri að leggja reiðstíg meðfram ströndinni í sveitarfélaginu. Þá var haldinn íbúafundur í félagsheimilinu Sólvangi þar sem hugmyndir voru ræddar. Íbúarnir voru sammála um að nota féð til að í að auka gæði í búsetu, bæta innviði og jafnvel styrkja önnur sveitarfélög sem Tjörnesingar sækja þjónustu til.
Sólarsellur og varmadælur
Á dögunum voru settar sólarsellur á þak félagsheimilisins Sólvangs. Tilgangurinn er að sjá hvað þær geta framleitt mikið rafmagn myrkustu mánuði ársins. Ef vel gengur gæti sveitarstjórninni hugnast að setja slíkan búnað á öll hús í sveitarfélaginu.
Ekki er langt síðan það lét setja upp varmadælur við nánast öll heimili Tjörnesinga. Sveitarfélagið er á svokölluðu köldu svæði og húshitun er niðurgreidd. Umhverfis- og orkustofnun styrkti varmadæluverkefnið og ekki er loku fyrir það skotið að hún geri slíkt hið sama við uppsetningu sólarsella.
„Umhverfis- og orkustofnun hafði samband við okkur í fyrravetur og stakk upp á því við okkur að fara í þetta sem næsta fasa. Ég viðurkenni að okkur hafði ekki dottið þetta í hug en við ákváðum að skella okkur í þetta,“ segir Aðalsteinn J. Halldórsson, oddviti sveitarstjórnar Tjörneshrepps.
Myrkustu mánuðir ársins fara í hönd og þeir eru ekki beint tilvaldir til rafmagnsframleiðslu með sólarsellum.
„Við eigum ekkert von á því að það sé mikið, svo það sé sagt. Við lögðum áherslu á að setja þetta upp fyrir myrkustu mánuðina til að fá einhverja mælingu á það. Við vitum að framleiðslan er góð svona hálft ár í það minnsta,“ segir Aðalsteinn.
Ekki hefur verið tekin lokaákvörðun um ráðstöfun fjárins en ef vel tekst til í Sólvangi og rafmagnsframleiðslan gengur vel kemur til greina að setja upp sellur hjá íbúum, þeim jafnvel að kostnaðarlausu.
„Markmiðið er að reyna að ná því niður hvað við kaupum af rafmagni. Við ætlum að leyfa þessu að ráðast og sjá hvernig gengur í Sólvangi.“
Reiðstígurinn ekki tilbúinn en markmiðið að bæta búsetugæði
Reiðstígurinn sem Aðalsteinn nefndi við fréttastofu í mars er ekki tilbúinn. Það var ekki jafn auðvelt og vonast var til.
„Það reyndist erfiðara en við áttum von á en við erum ekki búin að gefast upp á því,“ segir Aðalsteinn.
Líklegt er að kostnaður við sólarsellu sé um tíu milljónir við hvert heimili. Jöfnunarsjóðsframlagið gæti dugað fyrir 25 heimili en þá er ekki tekið til framlag Umhverfis- og orkustofnunar sem gæti verið um 20% af heildarkostnaði ef það er sambærilegt og með varmadælurnar.
„Eins og er eru þetta bara hugmyndir, margar tengjast félagsheimilinu Sólvangi eða að bæta búsetugæði íbúa á einhvern hátt.“