Dmitry Peskov, talsmaður rússneskra stjórnvalda í Kreml, varaði í morgun við stigmögnun átaka á Eystrasalti eftir að finnsk stjórnvöld greindu frá því að drónar sem notaðir voru í árás á rússneskt flutningaskip á laugardag væru að öllum líkindum úkraínskir.
Peskov sagðist vona að Eystrasaltsríkin myndu „beita áhrifum sínum“ á Úkraínu og vara þarlend stjórnvöld við því að halda árásum sem þessum áfram. Hann sagði árásirnar vera hryðjuverk sem ykju spennu í heimshlutanum.
Peskov tjáði sig ekki um árásir á rússnesk herskip við strendur Líbíu þrátt fyrir spurningar blaðamanna.
Úkraínumenn færa út kvíarnar
Úkraínumenn eru farnir að ráðast að Rússum víðar en áður. Auk árásarinnar á flutningaskipið þá gerðu Úkraínumenn drónaárás á tvö herskip við strendur Líbíu í gær. Annað þeirra sökk.
Volodymyr Zelensky, forseti Úkraínu, staðfesti í dag að leyniþjónusta og her lands síns hefði skotið sjö drónum að skipunum tveimur í Líbíu.
Sendinefnd Sameinuðu þjóðanna lýsti miklum áhyggjum af árás Úkraínumanna á rússnesku skipin. Hún sagði að Líbía mætti ekki verða vígvöllur erlendra ríkja.
Zelensky óskaði í morgun eftir viðræðum Úkraínu, Rússlands, Bandaríkjanna og Evrópusambandsins eins fljótt og auðið er. Fulltrúar Evrópu hafa ekki átt sæti við borðið í fyrri lotum friðarviðræðna en hafa að undanförnu lýst yfir áhuga á þátttöku í viðræðum. Zelensky kom þessum óskum á framfæri í myndbandsávarpi til fulltrúa NATO-ríkjanna sem nú funda í Berlín. Þar ítrekaði Zelensky óskir sínar um að ganga í Atlantshafsbandalagið.