„Í rauninni kemur mér ekkert lengur á óvart sem kemur úr ranni Sjálfstæðisflokksins þessa dagana,“ sagði Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra er hún var krafin svara um samning utanríkisráðuneytisins við ráðgjafafyrirtækið Nebraska.
Fyrirtækið er í eigu Heiðu Kristínar Helgadóttur og eiginmanns hennar, en hún var fengin til að veita ráðherra ráðgjöf í tengslum við þjóðaratkvæðagreiðslu um framhald aðildarviðræðna við Evrópusambandið.
Morgunblaðið greindi frá því að samningurinn hafi verið gerður þrátt fyrir að Nebraska hafi skuldað opinber gjöld. Einnig hefur komið fram að tveir reikningar hafi verið gefnir út eftir þjóðaratkvæðagreiðsluna. Upphaflegur verktakasamningur kvað á um 1.750 þúsund króna greiðslu á mánuði fyrir 25 vinnustundir á viku. Sú upphæð var síðar hækkuð en ekki liggur fyrir skriflegur samningur um þá hækkun en um munnlegt samkomulag var að ræða.
Ólafur Adolfsson, þingflokksformaður Sjálfstæðisflokksins, spurði ráðherra út í samninginn í óundirbúnum fyrirspurnartíma á Alþingi í dag. Undraðist hann að verktaki hafi verið fenginn til að sinna pólitísku starfi fyrir hönd ráðherra en einu tilvikin þar sem slíkt sé leyfilegt er ráðning aðstoðarmanns ráðherra. Sagði hann að 1.750 þúsund krónur fyrir 60 prósent vinnu væri „ansi góður díll“ en þó ekki nógu góður því hækka hefði þurft greiðslurnar um þriðjung.
Spurði hann ráðherra á hvaða lagagrundvelli þetta var gert, það er hvort ráðherra hefði verið heimilt að ráða sér verktaka til að sinna pólitískum störfum, hvernig launin voru ákvörðuð og á hvaða lagagrundvelli munnlegt samkomulag um hækkun greiðslna byggði.
Segir Morgunblaðið halla réttu máli
Þorgerður Katrín fullyrti að farið hafi verið eftir öllum reglum við ráðninguna og þótti mikilvægt að halda því til haga að á meðan ráðgjafinn starfaði í ráðuneytinu hafi hún ekki verið með annan aðstoðarmann þannig að kostnaðarauki ríkisins var enginn. „Það sem hefur verið sagt og meðal annars sett fram í Morgunblaðinu og komið fram þar er ekki rétt, þar er hallað réttu máli,“ sagði ráðherra.
Varðandi munnlega samninginn, sem gerður var eftir að þjóðaratkvæðagreiðslan var haldin, sagði Þorgerður Katrín að hnýta hefði þurft lausa enda og það væri alls ekkert óvanalegt.
Ólafur sagði svör ráðherrans ósannfærandi og að sú staðreynd að ráðherrann hafi ekki skipað aðstoðarmann á meðan samningurinn var í gildi skipti nákvæmlega engu máli um lögmæti samningsins. Það veiti ekki heimild til að ráðstafa opinberu fé í pólitíska baráttu, sagði Ólafur og ítrekaði spurningu sína um lögmæti samningsins.
Við því fékkst raunar ekki svar frá ráðherra sem þess í stað sagði það víst skipta máli að annar aðstoðarmaður hafi ekki verið ráðinn. „Mér finnst það skipta máli í heildarmyndinni að útgjöld ríkissjóðs séu ekki að aukast í þessu en háttvirtur þingmaður telur það greinilega aukaatriði.“ Ítrekaði Þorgerður Katrín að farið hafi verið eftir öllum lögum og reglum og sakaði þingflokksformanninn um dylgjur og aðdróttanir. „Mér finnst miður að það sé verið að vega að manneskju með hálfkveðnum vísum, með dylgjum. Mér finnst bara enginn sómi að því en í rauninni kemur mér ekkert lengur á óvart sem kemur úr ranni Sjálfstæðisflokksins þessa dagana.“