Helber er fæddur árið 2006 og er samningsbundinn hjá Fylki en var lánaður til Víkings Ólafsvíkur í sumar.
Guðrún Svava er fædd árið 2003 og hefur verið áberandi í íslensku samfélagi undanfarin ár. Hún er með rúmlega 87 þúsund fylgjendur á samfélagsmiðlinum Instagram, stýrði þáttunum Gugga fer á djammið hér á Vísi og var um stund með útvarpsþátt á Vísi ásamt Patreki Jaime. Þau halda nú uppi hlaðvarpinu Tvöfalt tjón.
Ástin blómstraði hjá þessu nýja pari á Edition-hótelinu í Reykjavík um helgina þar sem Gugga og Patrekur Jaime héldu skemmtilegt og líflegt pöbbkviss.