„Ég elska þig meira með hverju ári ástin mín og hlakka til að skrifa saman fleiri ævintýri í söguna okkar,“ skrifar Eva í færslu á Instagram og birtir fallega mynd af hjónakornunum.
Jógakennarinn Eva og læknirinn Kári, sem þekktastur er fyrir frumkvöðlastarf sitt hjá Íslenskri erfðagreiningu, giftu sig þann 22. nóvember árið 2024 og var gengið frá kaupmála af því tilefni.
„Mig grunaði ekki heldur að hann hefði mætt allt of snemma í þennan heim! Eða hvort ég mætti of seint. Ég læri kannski einhvern tímann betur á tímann,“ sagði Eva á samfélagsmiðlum fyrir tveimur árum.
Eva flutti svo lögheimili sitt til Kára og búa þau saman í Fagraþingi í Kópavogi. Þar deila þau rosalegu útsýni yfir Elliðarvatn úr húsi Kára sem ætíð hefur vakið mikla athygli vegna einstaks útlits þess. Húsið vann sem dæmi til fyrstu verðlauna í flokki stórra einbýlishúsa árið 2014 í árlegri verðlaunahátíð bandaríska tímaritsins Interior Design.
Eins og alþjóð veit spyr ástin ekki um aldur. Eva verður fertug á næsta ári en Kári á þrjú ár í áttrætt.