67 ára karlmaður í New York varð fyrir barðinu á ótrúlegri svikamyllu þegar hann var blekktur til að kaupa gullstangir fyrir níu milljónir Bandaríkjadala og afhenda þær ókunnugum manni úti á götu í Manhattan.Maðurinn taldi sig vera að koma fjármunum sínum í örugga höfn en sá aldrei gullið aftur. Lögreglan í New York hefur nú birt myndir og myndskeið úr eftirlitsmyndavélum og óskað eftir aðstoð almennings við að bera kennsl á mann sem hún vill ræða við vegna málsins.Bandaríski fréttamiðillinn Newser greinir frá málinu og vísar meðal annars til umfjöllunar New York Times.
Viðvörun í tölvunni kostaði hann rúman milljarð – Lögreglan leitar nú manns