Í tilkynningu frá Ríkislögreglustjóra segir að í morgun hafi ýmsum stofnunum og fyrirtækjum borist sprengjuhótanir í tölvupósti. Lögreglan taki allar slíkar hótanir alvarlega og meti hvert tilvik fyrir sig.
Miðað við fyrirliggjandi upplýsingar telji lögregla ekki ástæðu til frekari aðgerða að svo stöddu en fylgist áfram grannt með stöðu mála.
„Til skoðunar er hvort hótanirnar tengist sambærilegum hótunum sem bárust hér á landi fyrr í mánuðinum. Ekkert bendir hins vegar til þess að þær tengist hótunum sem borist hafa í Evrópu undanfarna daga.“
Á nokkurra daga tímabili í upphafi mánaðar barst nokkur fjöldi sprengjuhótana, sem allar voru raktar til Sýrlands og bárust frá netfangi sem Mohamed Thor Jóhannesson, áður Mohamed Kourani, hefur áður notað.
„Berist stofnun eða fyrirtæki sprengjuhótun er mikilvægt að hafa tafarlaust samband við lögreglu í síma 112,“ segir í tilkynningu lögreglu.