Þrýstingurinn á að ríki heims gyrði sig í brók og grípi til frekari aðgerða til þess að koma böndum á hnattræna hlýnun hefur aldrei verið meiri, þó að hann muni aðeins halda áfram að byggjast upp næstu árin og áratugina.
COP31-loftslagsráðstefnan í Antalya við Miðjarðarhaf var sú fyrsta frá því að Sameinuðu þjóðirnar lýstu því formlega yfir að ekki yrði umflúið að hnattræn hlýnun yrði meiri en 1,5 gráður, metnaðarfyllra markmið Parísarsamkomulagsins frá árinu 2015.
Hvert einasta ár frá og með 2015 raðar sér á lista yfir ellefu hlýjustu ár í mælingarsögunni. Mannskæðar náttúruhamfarir sem hlýnunin magnar upp eru nú árlegur viðburður.
Lausnin við hnattrænni hlýnun hefur legið fyrir lengi. Menn þurfa að hætta losun gróðurhúsalofttegunda en meginþorri hennar er vegna bruna á jarðefnaeldsneyti: olíu, kolum og jarðgasi.
Miklar verðhækkanir á olíu á þessu ári hafa valdið dýrtíð og þrengingum um nær allan heim. Efnahagslegur hvati hefði því átt að vera til staðar, auk loftslagsvárinnar sjálfrar, fyrir ríki heims til þess að losa sig undan oki jarðefnaeldsneytisins.
Þrátt fyrir það fór fundurinn út um þúfur og ekkert sameiginlegt samkomulag aðildarríkja Parísarsamningsins var undirritað.
Um hvað tókst ekki að semja?
Fyrir fundinum í Antalya lá, líkt og mörg fyrri ár, að skilgreina nánar hvernig ríki heims ætla sér að ná markmiðum Parísarsamningsins um að halda hlýnun jarðar innan við tvær gráður borið saman við viðmiðunartímabil fyrir iðnbyltingu og helst innan við eina og hálfa gráðu.
Þau markmið eru óbreytt þrátt fyrir samkomulagsleysið í Tyrklandi. Parísarsamningurinn gerir einnig enn ráð fyrir að aðildarríki hans setji sér æ metnaðarfyllri markmið með tímanum.
Bandalag 130 ríkja af þeim 192 sem eiga aðild að Parísarsamningnum, þar á meðal Íslands, undir forystu Evrópusambandsins og eyríkja í Kyrrahafi, vildi að lokaályktun fundarins gerði það ljóst að hætta þyrfti bruna jarðefnaeldsneytis. Olíuríki, undir forystu Sádi-Arabíu, komu í veg fyrir það en öll ríki þurfa að samþykkja endanlegt orðalag slíkra ályktana.
Fundurinn var framlengdur um tvo sólarhringa til þess að gefa fulltrúum ríkjanna lengri tíma til að ná saman. Bandalagsríkin höfnuðu lokadrögum frá Tyrkjum og Áströlum, sem héldu utan um viðræðurnar, þegar samkomulag náðist ekki um að vísa til þess að jarðefnaeldsneyti yrði fasað út.
Þá fengust heldur ekki vilyrði frá iðnríkjum fyrir frekari fjárstuðningi við þróunarríki sem þurfa að aðlagast loftslagsbreytingum og draga úr eigin losun þrátt fyrir að þau beri takmarkaða ábyrgð á vandanum.
Ósáttir við að fá kolefnisföngun ekki inn
Sádar voru á móti ósáttir við andstöðu sumra bandalagsríkjanna við að minnast á mikilvægi kolefnisföngunar í lokaályktun fundarins.
„Við getum ekki samrýmt þá afstöðu sem menn lýsa opinberlega yfir að það þurfi að halda 1,5 gráðu markmiðinu innan seilingar við að kalla kolefnisföngun, nýtingar- og geymslutækni grænþvott,“ hefur Politico eftir Mohammad Ayoub, aðalsamningamanni Sádi-Arabíu.
Kolefnisföngun og förgun er nauðsynleg til þess að eiga við losun frá geirum þar sem erfitt er að koma í veg fyrir hana og einnig ef menn vilja vinda ofan af þeirri hlýnun sem fyrirséð er að eigi sér stað.
Tæknin, sem er enn tiltölulega skammt á veg komin, mætir hins vegar mótstöðu margra vegna þess að olíuframleiðendur hafa hampað henni sem lausn á vandanum án þess að hætta þurfi bruna á jarðefnaeldsneyti. Hún dygði þó hvergi nærri til að vega upp á móti þeim tugum milljarða tonna af koltvísýringi sem menn dæla út í lofthjúp jarðar á hverju einasta ári.
Bandaríkin áttu ekki fulltrúa á ráðstefnunni en Donald Trump Bandaríkjaforseti dró landið úr Parísarsamningnum í fyrra. Land hans er sögulega stærsti losandi gróðurhúsalofttegunda á jörðinni og ber þannig stærsta ábyrgð á þeirri hnattrænu hlýnun sem á sér stað.
Ekki lengur til í að sitja á strák sínum
Fréttastjóri AP-fréttastofunnar í loftslagsmálum rekur niðurstöðu fundarins til þess að Evrópuríki og mörg önnur hafi ekki lengur verið tilbúin að malda aðeins í móinn og samþykkja svo útvatnaðar ályktanir líkt og á fyrri fundum.
Spurningar vakni nú um framtíð COP-fundanna en sá næsti fer fram í Eþíópíu að ári. Raddir hafi heyrst um að stytta fundartímann og takmarka fundina við samninganefndir aðildarríkja. COP-fundir hafa þanist út á undanförnum árum og taka tugir þúsunda manna nú þátt í þeim, fjölmargir þeirra málsvarar hagsmunaafla.
Erfitt er þó að sjá hvernig annað fyrirkomulag á ráðstefnunni gæti fengið olíuríki með ríka efnahagslega hagsmuni af óbreyttu ástandi ofan af andstöðu sinni við þau algeru og hröðu orkuskipti sem þurfa að eiga sér stað.
Juan Carlos Navarro, umhverfisráðherra Panama, var sérstaklega harðorður vegna árangursleysisins í síðustu viku. Sakaði hann „olíumafíu“ um að halda ráðstefnunni í gíslingu.
Þá sagði hann þá kröfu að öll ríki þyrftu að leggja blessun sína yfir samkomulag COP-funda út í hött.
„Þetta fáránlega fyrirkomulag að hafa algera samstöðu þar sem 192 ríki og hundrað þúsund manns sem eru hér í Antalya eru sammála um algerlega allt er uppskrift að hörmungum,“ sagði Navarro ómyrkur í máli.
Betra en útvötnuð yfirlýsing
Ekki eru allir á því að samkomulagsleysið sé endilega neikvætt.
„Að fara út um þúfur er betra en hálfvolgt lokaskjal hefði verið. Þetta sendir heiminum kröftug skilaboð um hversu alvarleg staðan er,“ segir Johan Rockström, sænskur loftslagsvísindamaður við Potsdam-loftslagsstofnunina í Þýskalandi, í yfirlýsingu eftir fundinn.
Allar fréttir af ráðstefnunni í Tyrklandi voru heldur ekki neikvæðar. Fulltrúar Evrópusambandsins og Bretlands tilkynntu á föstudag að þeir ætluðu að tengja evrópska viðskiptakerfið með losunarheimildir (ETS) við bresku hliðstæðu þess.
Þá tilkynntu Kínverjar að þeir ætluðu að halda áfram rafvæðingu hagkerfis síns og að þeir ætluðu að hjálpa öðrum ríkjum að gera slíkt það sama.