Ungfrú alheimur fer fram í 75. skiptið í José Miguel Agrelot-íþróttahöllinni í San Juan í Púertó Ríkó í ár og taka rúmlega hundrað lönd þátt.
Keppnin hófst á þjóðbúningasýningu á laugardag og svo fór undankeppnin fram í gær. Lokakvöldið fer fram annað kvöld en það hefst á stóru opnunaratriði þar sem öll löndin taka þátt.
Eftir opnunaratriðið verður tilkynnt hvaða keppendur lenda í efstu þrjátíu sætunum og ganga þær fram í sundfötum. Í kjölfarið verður svo tilkynnt hvaða keppendur enda í efstu tólf sætunum og ganga þær fram í síðkjólum.
Keppninni lýkur svo á að efstu fimm keppendurnir fá spurningar á sviðinu og er raðað niður í efstu sætin áður en Fátima Bosch frá Mexíkó, sem vann keppnina í fyrra, krýnir eftirmann sinn.
Hin 27 ára Sigríður Ósk, sem er betur þekkt undir sviðsnafninu Sigga Ózk, er fulltrúi Íslands í keppninni eftir að hafa verið krýnd sem Ungfrú Ísland í Gamla bíói í vor. Sigga tók þátt í undanúrslitakvöldinu í gær, þandi raddböndin þegar hún sagði nafn sitt og kom fram í lillabláu bikiníi og ljósbláum síðkjól.
Sigga er söngvari, lagahöfundur og kennari, hefur tvisvar komist í úrslit í Söngvakeppninnar, árin 2023 og 2024, og sendi hún frá sér aðra plötuna sína, Pink Static, rétt áður en hún hélt út til Púertó Ríkó. Hægt er að horfa á brot úr þátttöku Siggu í undankeppninni í gær hér að ofan.