Þorgerður og falsreikningur Heiðu

Páll Vilhjálmsson skrifar:
Heiða Kristín skrifaði reikning á utanríkisráðuneytið áður en hún hóf störf sem ,,ráðgjafi“ Þorgerðar Katrínar utanríkisráðherra. Verktakasamningur Heiðu Kristínar var undirritaður 4. mars með ákvæði um að samningurinn ,,taki gildi við undirritun.“ Fyrsti reikningur Heiðu Kristínar er dagsettur 1. mars, þrem dögum áður en samningurinn er undirritaður. Samkvæmt samningnum sjálfum er um að ræða falsreikning.
Tölvupóstar milli utanríkisráðuneytisins og Heiðu Kristínar í febrúar sýna að hún vann enga vinnu í febrúar til að rukka fyrir 1. mars. Í febrúar skrifaðist Heiða Kristín á við Martin Eyjólfsson ráðuneytisstjóra um orðalag verktakasamningsins.
Nútíminn birtir myndir af reikningi og samningi Heiðu Kristínar, í gegnum einkahlutafélagið Nebraska, og utanríkisráðuneytið.
Á heimasíðu utanríkisráðuneytisins sagði að Heiða Kristín sé ráðin ráðgjafi Þorgerðar Katrínar ,,vegna undirbúnings við þjóðaratkvæðagreiðslu um aðildarviðræður Íslands við Evrópusambandið.“
Ríkisstjórnin samþykkti tillögu utanríkisráðherra 6. mars, tveim dögum eftir ráðningu Heiðu Kristínar. Alþingi samþykkti ekki tillögu um þjóðaratkvæði fyrr en í lok maí. En Heiða Kristín skrifaði reikning 1. mars vegna ,,vinnu“ í febrúar. Samkvæmt reikningnum fólst ,,vinna“ Heiðu Kristínar fyrir utanríkisráðherra í ráðgjöf, ritstörfum og ræðuskrifum.
Þorgerður Katrín og Heiða Kristín eru vinkonur. Eiginmaður Heiðu Kristínar var áður aðstoðarmaður Þorgerðar Katrínar, líkt og rekið er í bloggi. Hjónin, sem eiga saman Nebraska ehf., eru stórskuldug skattinum. Vangoldnir skattar hjónanna eru upp á 16 milljónir króna. Ríkisstofnunum er óheimilt að gera ráðninga- eða verktakasamninga við aðila sem eru í vanskilum með opinber gjöld. Um ráðherravini gilda óskráðar sérreglur. Þeir fá að maka krókinn í trássi við lög og reglur.
Málsatvik hníga öll í þá átt að verktakasamningur utanríkisráðuneytisins og Heiðu Kristínar hafi verið málamyndagerningur. Þorgerður Katrín hafi í reynd samþykkt að vinkona hennar rukkaði ríkissjóð um verktakagreiðslur án vinnuframlags. Þjóðaratkvæðagreiðslan var tylliástæða. Eftir að alþingi samþykkti tillögu ráðherra í lok maí átti stjórnarráðið, utanríkisráðuneytið meðtalið, enga aðkomu að undirbúningi þjóðaratkvæðagreiðslunnar. Landskjörstjórn sér um þann þátt málsins. Heiðu Kristínar biðu engin verkefni til að vinna. Enda stóð það aldrei til. Vinkona í valdastöðu reddar heimilisbókhaldinu fyrir árið.
Spillingin verður enn skýrari með munnlegum fyrirmælum Þorgerðar Katrínar að hækka greiðsluna til vinkonu sinnar úr 10,5 milljónum í 14 milljónir króna.
Ráðherra sem lætur greipar sópa um fjárhirslur ríkisins fyrir vin sína starfar ekki í þágu almannahagsmuna. Dálítið sérstakt að þessa hugsun þurfi að segja upphátt árið 2026.