Guðrún Aspelund sóttvarnalæknir segir í skriflegu svari við fyrirspurn fréttastofu ekki unnt að segja til um ástæður þess að íslenskur karlmaður smitaðist af creutzfeldt-jakob-sjúkdómi sem dró hann til dauða 1. nóvember. Ekkert hafi komið fram sem bendi til smits í þessu tilfelli, segir í svari Guðrúnar.
Hún segir að um 85% tilvika svokallaðs sporadísks creutzfeldt-jakob komi upp án þekktrar orsakar eða smitleiðar enda sé hann ekki smitsjúkdómur í hefðbundnum skilningi. Engar leiðir séu því þekktar til að koma í veg fyrir þetta sporadíska afbrigði sjúkdómsins.
Allt bendi til þannig hátti varðandi manninn sem lést 1. nóvember og ekkert bendi til smits eða arfgengrar orsakar.
„Því er ekki hægt að segja að einstaklingur hafi smitast á tilteknum stað eða í tilteknu landi,“ segir í svarinu.
Sporadískir sjúkdómar koma fram tilviljanakennt og óreglulega án þess að vera arfgengir. Creutzfeldt-jakob er arfgengur í tíu til fimmtán prósentum tilvika og mjög sjaldgæfur, með um eitt til tvö tilfelli árlega á hverja milljón íbúa. Einstaka tilfelli geti komið upp án þess að þau tengist.
Guðrún segir ekkert benda til þess að þessi veikindi leiði til fleiri tilfella creutzfeldt-jakob hérlendis enda smitist sjúkdómurinn ekki við venjuleg samskipti, snertingu eða umönnun. Því þurfi almenningur ekki að grípa til sérstakra varúðarráðstafana enda sé ekki hætta á útbreiðslu í samfélaginu ólíkt hefðbundnum smitsjúkdómum.
„Mikilvægt er að greina hefðbundinn CJS frá sérstöku afbrigði sjúkdómsins (variant CJD, vCJD), sem tengist kúariðu (BSE) og smiti með menguðum nautgripaafurðum, einkum í Bretlandi fyrir um 30 árum.“
Guðrún segir að gripið hafi verið til umfangsmikilla ráðstafana til að koma í veg fyrir slíkt smit.
„Þetta afbrigði er nú afar sjaldgæft og hefðbundinn CJS tengist ekki kúariðu,“ segir í svari Guðrúnar Aspelund.