Íbúðin er í fjölbýlishúsi sem var byggt árið 2006. Hún var endurhönnuð árið 2019 og sá Hafsteinn Júlíusson hjá HAF Studio um hönnun. Björn Braga þarf vart að kynna en hann stýrir sjónvarpsþáttunum Kviss á Sýn og hefur um árabil gefið út hin vinsælu borðspil Pöbbkviss auk Krakkakviss og Stubbakviss en sjötta spilið í seríunni kom út í ár.
Fram kemur á fasteignavef Vísis að stórir gluggar auk staðsetningar íbúðarinnar í enda hússins veiti einstaklega góða birtu og fallegt útsýni í fleiri en eina átt. Rúmgóð forstofa veiti stórbrotið útsýni yfir sjóinn og Esjuna. Íbúðinni fylgir rúmgóð sérgeymsla, 9,2 fermetrar í kjallara hússins.