Til stendur að stækka Kaupmannahafnarflugvöll umtalsvert.
Áætlanir gera ráð fyrir að flugvöllurinn geti tekið á móti 55 milljónum farþega árlega að framkvæmdum loknum. Búist er við að 34,5 milljónir farþega fari um flugvöllinn í ár. Til samanburðar gerir farþegaspá Isavia ráð fyrir að 7,5 milljónir farþega fari um Keflavíkurflugvöll í ár.
Í fréttatilkynningu frá rekstrarfélagi flugvallarins segir að gert sé ráð fyrir að framkvæmdum ljúki 2028. Þar segir að stækkuninni sé ætlað að styrkja tengsl Danmerkur við umheiminn og stuðla að fjölgun starfa og hagvexti.
„Sem lítið land með opið hagkerfi er Danmörk mjög háð tengingunni við restina af heiminum,“ segir Christian Poulsen, forstjóri rekstrarfélags Kaupmannahafnarflugvallar. „Þetta samband tryggir aðgang danskra fyrirtækja að erlendum mörkuðum, það flytur ferðamenn og laðar fjárfestingu til Danmerkur og tengir okkur við umheiminn.“
Í frétt danska ríkisútvarpsins, DR, um áformin segir að fjölmiðlar hafi í gegnum tíðina fjallað um óánægju nágranna flugvallarins með bæði hávaða og mengun. Stjórnendur flugvallarins segja að tekið verði tillit til íbúa í grennd flugvallarins á framkvæmdatímanum.
Þá sé eitt af markmiðum stækkunarinnar að geta tekið á móti nýjum tegundum flugvéla sem eiga að menga minna og vera hljóðlátari en fyrri gerðir.