Vilhjálmur Þorsteinsson, stofnandi og stjórnarformaður Miðeindar, hlaut verðlaunin á degi íslenskrar tungu, 16. nóvember síðastliðinn. Hann er 31. handhafi verðlaunanna frá því þau voru fyrst veitt árið 1996.
„Verðlaunum Jónasar Hallgrímssonar fylgir fjárupphæð sem mér skilst að sé a.m.k. 500 þúsund krónur. Ég hugsaði í smástund hvað ég ætti að gera við peningana en rétta niðurstaðan birtist hrein og tær,“ segir Vilhjálmur og heldur áfram.
„Verðlaunaféð rennur til samtakanna Solaris, með sérstakri heimild til að þau megi ganga til málsvarnar Semu Erlu forystukonu samtakanna og eftir atvikum til greiðslu fjársekta sem hún kann að vera dæmd til að greiða vegna starfa sinna fyrir samtökin.
Sema Erla og Solaris hafa sætt ofsóknum manna úti í bæ, og því miður einnig lögreglu og saksóknara, fyrir þá meintu sök að hafa safnað fé til að forða palestínskum fjölskyldum með íslensk dvalarleyfi úr bráðri lífshættu á Gaza, meðan þáverandi yfirvöld sátu á höndum sér og gerðu lítið sem ekkert.“
Sema sætir ákæru lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu fyrir brot á lögum um opinberar fjársafnanir. Ákæran snýr að því að Sema Erla, sem er skráður ábyrgðarmaður félagsins Solaris, hjálparsamtaka fyrir hælisleitendur, hafi ekki tilkynnt söfnun á vegum samtakanna árið 2024 til sýslumanns áður en hún hófst og er vísað í tilgreinda lagasetningu þar um.
„Þegar fólk er ofsótt af opinberu ákæruvaldi fyrir hugrekki sitt og framtak til að bjarga mannslífum er eitthvað mikið að. Slíku framferði ber að mótmæla og andæfa; það er allavega ekki í mínu nafni. Málflutningur í máli ákæruvaldsins gegn Semu Erlu fer fram á morgun í Héraðsdómi Reykjavíkur. Það er því tímabært að leggja orð í belg og spyrna við fótum, í nafni mannréttinda og mannúðar,“ segir Vilhjálmur.
Vilhjálmur segist í samtali við Vísi hafa fengið þær upplýsingar að verðlaunaféð sé a.m.k. hálf milljón króna.
„Ég veit ekki meir! En upphæðin, hver sem hún verður, fer öll til Solaris og a.m.k. 500 þúsund fer þangað strax núna. Ég bíð ekki eftir ráðuneytinu með það.“
Vísir hefur sent menningarmálaráðuneytinu fyrirspurn um upphæðina. Hún var ein milljón króna árið 2006 þegar Njörður P. Njarðvík hlaut verðlaunin en nú bendir ýmislegt til þess að upphæðin hafi verið lækkuð.