Tónleikagestir hafa margir hverjir lýst því í samtali við breska fjölmiðla að þeir hafi talið reykinn hluta af tónleikunum. Gamanið kárnaði hins vegar fljótlega þegar tónleikagestir byrjuðu að hósta og fundu fyrir kláða í augum.
Um það bil klukkustund leið frá því Toliver gekk sjálfur af sviðinu og þar til tónleikagestum var tilkynnt að tónleikunum hefði verið aflýst.
Um áttatíu tónleikagestir fengu aðhlynningu frá sjúkraflutningamönnum og var einn fluttur á sjúkrahús. Breskir miðlar hafa eftir lögreglu að grunur sé um að um táragas hafi verið að ræða en það hefur ekki verið staðfest. Toliver sendi tónleikagestum kveðju á Instagram í dag og beindi orðum sínum til þeirra sem gætu hafa borið ábyrgð á reyknum: „Hættið að koma með svona drasl á tónleikana mína.“
Gestirnir munu fá miðana endurgreidda en tónleikum Tolivers í O2-höllinni í London, sem áttu að fara fram í kvöld, hefur verið frestað til 15. desember.