Nöfnin tvö sem nefndin hafnaði að þessu sinni voru Hinrick og Yrma. Eiginnafnið Hinrick er ekki ritað í samræmi við ritreglur íslensks máls þar sem bókstafurinn c er ekki í íslenska stafrófinu og því aðeins unnt að samþykkja umbeðinn rithátt að hefð sé fyrir honum, sem mannanafnanefnd taldi ekki vera.
Yrma er ekki í samræmi við íslenskar ritreglur þar sem bókstafurinn y er bara ritaður í íslenskum orðum nema þar sem hann styðst við uppruna sem á ekki við í þessu tilviki.
Sex ný kvenmannsnöfn voru færð á skrá: Ruby, Brimbrá, Gaia, Antónína, Mána og Valörk.
Eitt karlkynsnafn bættist við sem er nafnið Arvid og eitt kynhlutlaust, nefnilega Hrafnhljóð.
Til að heimilt sé að samþykkja nýtt eiginnafn þarf nafnið að uppfylla fjögur skilyrði. Í fyrsta lagi þarf það að geta tekið íslenska eignarfallsendingu eða hafa unnið sér hefð í íslensku máli, í öðru lagi má nafnið ekki brjóta í bág við íslenskt málkerfi og í þriðja lagi skal nafnið ritað í samræmi við almennar ritreglur íslensks máls nema hefð sé fyrir öðrum rithætti þess. Að lokum má nafnið ekki vera þannig að það geti orðið nafnbera til ama.