Heilsugátt Landspítalans lá niðri í rúmlega korter laust eftir hádegið. Heilsugátt er rafrænt sjúkraskrárkerfi í eigu spítalans.
Fréttastofu hafa borist ábendingar um að meðal annars hafi ekki verið hægt að nálgast sjúkraskrár eða bóka blóðprufur. Kerfið er komið aftur í gagnið.
Truflun sem þessi ætti ekki að stofna öryggi sjúklinga í hættu eða skapa lífshættulegar aðstæður samkvæmt upplýsingum frá spítalanum.
Deildir Landspítalans grípa til viðbragðsáætlana þegar tölvukerfi verða óaðgengileg. Almennt er miðað við að það sé gert eftir um 15 mínútur.
„Ef um bráð tilfelli eða slys er að ræða er alltaf hægt að nálgast myndgreiningar beint í tækjunum sjálfum. Sama á við um aðgerðir sem kunna að vera í gangi. Truflunin ætti því ekki að skapa mikla áhættu, þótt hún geti valdið óþægindum varðandi skráningu í rauntíma,“ segir í svörum frá spítalanum.
Ekki liggur fyrir hvað olli trufluninni. Landspítalinn hefur það til skoðunar.