Mörður Áslaugarson, framkvæmdastjóri nethýsingarfyrirtækisins 1984, hrósar viðbrögðum CERT-IS við netárásinni sem gerð var fyrir helgi en kallar eftir meiri og betri stuðningi frá hinu opinbera þegar ráðist er á mikilvæga og ómissandi innviði.
„Og þau koma eftir á og finna hugsanlega einhverja veika punkta í okkar aðgerðum og refsa okkur. Þau sekta okkur. Ég lýsi eftir því að hið opinbera komi og styðji okkur en refsi okkur ekki.“
Mörður segir að í morgun hafi verið stutt í að unnt yrði að endurræsa tölvupóstþjónustu fyrirtækisins þegar óskyldur öryggisveikleiki uppgötvaðist.
Þetta lýsir mjög vel því ástandi sem er í upplýsingatækni í heiminum. Við vorum búin að lofa því að setja tölvupóstþjónustuna í gang í morgun og vorum bara með puttann yfir enter-takkanum að setja hana online þegar tilkynning berst úr öryggiskönulum sem við fylgjumst vel með um að það sé mjög alvarleg öryggishola í Linux-kjarnanum svo við urðum að hætta við og uppfæra allar vélarnar upp á nýtt. Þetta er óskylt árásinni og er bara dæmi um atvik eftir atvik sem við erum stanslaust að bregðast við.
Þetta veldur töfum en Mörður býst við að tölvupóstþjónustan komist í gagnið í dag og að því búnu svonefndir sýndarþjónar eða VPS. „Við vonumst til þess að seint í kvöld fari vefirnir að koma upp.“
Þá verði fyrirtækið fullstarfandi að nýju eftir það sem Mörður segir erfiða og svefnlausa daga. Velja hafi þurft á milli þess að hætta á að gögn sköðuðust af völdum árásarinnar og þess að þetta yrðu eingöngu óþægindi.
Ákveðið hefði verið að loka á aðgengi að kerfunum til að koma í veg fyrir skaða. „Með því að taka kerfin offline fengum við frið til að þrífa eftir þá. Við höfum verið að gera það dag og nótt bókstaflega síðan.“
Sennilega verði ekki mögulegt að kaupa nýja þjónustu fyrr en í næstu viku. Engar upplýsingar og gögn hafi týnst. Ráðist hafi verið að sjö síðum tengdum Palestínu og þær skemmdar.
„Og það sem eyðilagt var, þessir Palestínuvefir, það eigum við í afritum og við setjum það upp bara. Og það verður bara eins og áður var.“ Engin gögn hafi glatast og allar vefsíður verði á sínum stað þegar opnað verður fyrir vefhýsinguna. Árásin hafi verið stöðvuð nógu snemma til þess.
Ekkert sé vitað hverjir sendu Trójuhestinn inn í kerfið enda skilji glæpamenn ekki eftir nafnspjöld. Annars vegar var unnið að því að stöðva árásarmennina og hins vegar að taka til eftir þá. „Hvort tveggja er nánast útilokað að gera samtímis“.
Umfang og eðli árásarinnar bendir til þess að erlent ríki standi að baki henni, enda umfangsmikil og háþróuð, og að 1984 muni sennilega leggja fram kæru vegna hennar í dag. Þá verði málið í höndum yfirvalda.
„Ég vona að þetta verði rannsakað og við erum öll af vilja gerð hér til að rannsaka það auðvitað.“
Verkefnið er að tryggja að lestirnar komi á réttum tíma
Mörður Áslaugarson segir netþjónustu snerta stóran hluta tilverunnar. „Sem maður fattar ekki fyrr en á bátinn gefur. Keeping the trains og time er það sem sagt er á útlensku. Þegar lestirnar koma á réttum tíma tekur enginn eftir neinu en þegar þær koma ekki þá allt í einu. Það er okkar hlutverk hér að reyna að sjá til þess að lestirnar séu á réttum tíma.“
Í þessum atvikum hafi lestirnar tafist og fólk fundið fyrir því. Til dæmis barst tilkynning í morgun um að vefur Ísaksskóla lægi niðri og um helgina kvaðst Hjálmtýr Heiðdal, formaður Félagsins Ísland-Palestínu, telja vefsíðu félagsins ónýta. Árásinni hefði verið beint að tjáningarfrelsinu.