Frá og með deginum í dag, 23. nóvember, mun ÁTVR bjóða upp á heimsendingu á vörum úr vefverslun. Boðið hefur verið upp á pantanir úr verslunum Vínbúðanna frá árinu 2000 og úr vefverslun frá 2009.Í tilkynningu frá ÁTVR segir Þorgerður Kristín Þráinsdóttir, forstjóri ÁTVR, að úrvalið í vefversluninni sé mun breiðara en í Vínbúðunum. Þá sé með þessu stigið skref í því að jafna aðgengi að þessu úrvali óháð búsetu.
ÁTVR byrjar að bjóða upp á heimsendingu á áfengi