Héraðssaksóknari hefur ákært mann fyrir nauðgun, kynferðislega áreitni og brot gegn blygðunarsemi. Manninum er gefið að sök að hafa í fjölda skipta á árunum 2021 til 2024 brotið gegn andlega fatlaðri konu á heimili hennar. Hafi hann, án samþykkis og með ólögmætri nauðung, haft önnur kynferðismök en samfarir við konuna og áreitt hana kynferðislega með ýmsum hætti, meðal annars með því að fróa sér fyrir framan hana.
Nauðgaði andlega fatlaðri konu