Quyhn Ahn var krýnd í Víetnam í byrjun október en hélt titlinum þó í mjög stuttan tíma þar sem einhver lak einkaskilaboðum frá henni. Þar talaði hún illa um samkeppendur sína, dómarana og fyrrum sigurvegara, en hélt auðvitað að enginn utan hópspjallsins myndi lesa þau. Fleiri stelpur úr keppninni voru í hópspjallinu, þar á meðal sú sem lenti í öðru sæti.
Quyhn Ahn sendi frá sér yfirlýsingu þar sem hún baðst afsökunar og sagði meðal annars:
„Ég veit að þrátt fyrir að bera fegurðardrottningartitil þá er ég ekki ónæm fyrir því að gera mistök. Hins vegar ber mér skylda til að passa betur upp á orðin mín og vera meðvituð um þá ábyrgð sem ég ber sem fegurðardrottningin, jafnvel í því sem virðist vera minniháttar atvik.“
Quyhn Ahn þurfti sömuleiðis að borga sekt og mátti ekki mæta á neina viðburði tengda fegurðarsamkeppninni í allavega sex mánuði samkvæmt framleiðslufyrirtæki keppninnar, Five6 Entertainment.
Hún mætti þó á viðburð sem Miss Universe Vietnam þrátt fyrir bannið og framleiðslufyrirtækið var allt annað en sátt við það.
„Þetta skapaði vandamál sem hafa áhrif á ímynd Miss Universe Vietnam og skipuleggjendur keppninnar,“ er haft eftir þeim.
Þau segja að Quyhn Ahn hafi sömuleiðis beðið með að skrifa undir samning við þau og sagst þurfa að hlúa að andlegri heilsu fyrst en hafi þó á meðan skrifað undir samning við nýja umboðsskrifstofu sem er í samkeppni við Five6.
Víetnam er því ekki með neinn fulltrúa í Miss World sem fer fram á morgun en Sigga Ósk er þar fulltrúi Íslands.