Vísir greindi í síðustu viku frá hveitiskandal í Danmörku eftir að ummerki eftir dýr og myglu fundust í korngeymslum Danish Agro sumarið og haustið 2025. Á þriðjudag viðurkenndi danska matvælaeftirlitið að það hefðu verið mistök að innkalla ekki allt hveiti frá umræddu tímabili frá danska hveitiframleiðandanum Valsemøllen.
Fréttastofa óskaði í síðustu viku eftir upplýsingum frá danska matvælaeftirlitinu um hvort hveitið hefði verið selt til Íslands en hefur ekki fengið svör. Valsemøllen vísaði fyrirspurnum fréttastofu til íslenskra viðskiptavina sinna en fyrirtækið innkallaði hveiti á miðvikudag.
Krónan innkallaði svo First Price- hveiti sem rann út í september á þessu ári á fimmtudag í síðustu viku. Það sama á við um Lífland sem innkallaði Kornax með sömu dagsetningu. Þá innkallaði Matvælastofnun sömu tegundir vegna myglueiturs yfir mörkum á föstudag.
Skrítið að tilkynna ekki
Katrín Guðjónsdóttir deildarstjóri matvæladeildar MAST segist hafa fengið upplýsingar frá íslensku fyrirtækjunum um málið á fimmtudag en furðar sig á því að stofnuninni hafi ekki borist formlegar tilkynningar um málið frá hraðviðvörunarkerfi Evrópu.
„Venjulega þegar svona mál koma upp þá fáum við tilkynningar í gegnum hraðviðvörunarkerfi Evrópu sem á að vara við hættum í matvælum og fóðri. Matvælaeftirlitið í Danmörku hefði þá átt að senda tilkynningu inn í kerfið. Við hefðum búist við því þegar málið kom upp og erum að ýta við þeim. Okkur finnst þetta skrýtið og vitum ekki hvers vegna við erum ekki búin að fá neitt frá þeim,“ segir hún.
Ekki hægt að útiloka veikindi
Danski tækniháskólinn hefur birt áhættumat á umræddu hveiti. Þar kemur fram að ekki sé hægt að útiloka að það innihaldi sveppaeitur. Þá sé ekki hægt að útiloka að fólk hafi eða geti veikst af salmonellu. Loks sé ekki hægt að útiloka veikindatilfelli meðal almennings.
Katrín telur ólíklegt að fólk hafi eða muni veikjast vegna hveitisins. Það sé þó ekki hægt að útiloka það.
„Við erum búin að kynna okkur þetta og í rauninni er meginniðurstaðan að vegna aðstæðna sem kornið var við sé ekki hægt útiloka að mikið magn af sveppaeitri eða myglueitri sé í hveitinu sem var framleitt úr þessu korni. Áhættumatið segir að við svona aðstæður beri að meðhöndla það sem ákveðna áhættu. Neytendur ættu hins vegar ekki að hafa miklar áhyggjur af þessu, það þyrfti að borða svo mikið magn yfir langan tíma,“ segir hún en bætir við að fólki sé ráðlagt að neyta ekki hveitisins.
Umfangið ekki vitað
Katrín segir að nú sé verið að kanna hversu mikið magn af umræddu hveiti barst til Íslands.
„Við erum að senda beiðni á heilbrigðiseftirlitin sem hafa eftirlit með fyrirtækjum sem dreifa hveitinu til að afla upplýsinga um hversu mikið magn af umræddu hveiti barst alls til Íslands. Undir venjulegum kringumstæðum ætti hraðviðvörunarkerfið að láta okkur fá lista yfir umrætt hveiti og hvert það var selt,“ segir hún.
Katrín segir sjaldgæft að svo stór mál komi upp.
„Þetta er náttúrulega sérlega stórt, hveiti er undirstöðuafurð og þá verður þetta auðvitað stærra mál,“ segir hún.
Matvælastofnun barst tilkynning frá hraðviðvörunarkerfi Evrópu rétt fyrir hádegi um að viðvörun frá þeim vegna málsins væri á leiðinni.