Rússar eru sagðir undirbúa að senda gervihnött búinn kjarnorkuvopni á braut um jörðu áður en árið er á enda. Vestrænar leyniþjónustustofnanir telja að Rússar séu að undirbúa slíka aðgerð, en kjarnorkusprenging í geimnum gæti lamað fjarskipti, leiðsögukerfi og mikilvæga innviði á Vesturlöndum.Breska blaðið Daily Mail greinir frá þessu í dag og vísar meðal annars til upplýsinga frá þýskum og bandarískum yfirvöldum.
Rússar sagðir undirbúa að senda kjarnorkuvopn út í geim fyrir áramót – Afleiðingarnar gætu orðið skelfilegar