Fann loks úrræði sem hjálpaði syninum – Nú bíður hann eftir samþykki borgarinnar til að hefja skólagöngu en mætir ærandi þögn

Hinn ellefu ára Rökkvi hefur enn ekki hafið skólagöngu í haust, þótt rúmar sex vikur séu liðnar frá því skólaárið hófst. Móðir hans, Sigurrós Yrja, segir að pláss bíði hans í skólaúrræði Klettabæjar, þar sem honum leið loks vel í sumar. Samþykki skóla- og frístundasviðs Reykjavíkurborgar hafi hins vegar ekki borist og hún hafi ekki fengið skýringar á töfinni.

Á meðan drengurinn bíður segir móðir hans líðan hans fara versnandi. Hann sé einmana, gráti reglulega og skilji ekki hvers vegna hann fái ekki að fara þangað sem honum líði vel. Skólaúrræði Klettabæjar hefur einnig haft samband við borgina vegna málsins, en ekki fengið svör.

„Ég fékk barnið mitt til baka“

Að sögn Sigurrósar er Rökkvi með ADHD og einhverfugreiningu og hefur átt erfitt uppdráttar í hefðbundnu skólaumhverfi. Hún segir að lengi hafi verið leitað að stuðningi sem mætti þörfum hans og að mikil breyting hafi orðið þegar hann hóf að sækja Klettabæ í lok júní.

Í sumar var hann þar í frístundarúrræði alla virka daga og í helgardvöl aðra hverja helgi.

Sigurrós segir að strax á fyrstu vikunni hafi orðið greinileg breyting á líðan hans. Hún hafi ekki séð honum líða jafn vel síðan hann var tveggja ára.

„Ég fékk barnið mitt til baka,“ segir hún.

Hún segir að engin formleg höfnun hafi heldur borist og að hún viti ekki hvað standi í vegi fyrir samþykkinu

Klettabær er einkarekinn þjónustuaðili sem sinnir meðal annars börnum og ungmennum með fjölþættar stuðningsþarfir. Starfsemin nær yfir skólaúrræði, frístundastarf, skammtímadvalir og búsetuúrræði, með áherslu á einstaklingsmiðaðan stuðning sem tekur mið af þörfum hvers og eins.

Plássið er til staðar

Samkvæmt frásögn Sigurrósar lá fyrir rétt áður en skólaárið hófst, 25. ágúst, að Klettabær hefði pláss fyrir Rökkva í skólaúrræðinu. Til þess að hann geti hafið nám þar þurfi hins vegar samþykki skóla- og frístundasviðs borgarinnar. Það hefur enn ekki borist.

Hún segir að engin formleg höfnun hafi heldur borist og að hún viti ekki hvað standi í vegi fyrir samþykkinu. Rökkva hafi ekki verið úthlutað plássi í öðrum skóla fyrir veturinn.

Sigurrós segir að barnaverndarþjónusta og félagsráðgjafi hjá Norðurmiðstöð hafi einnig fylgt málinu eftir og vilji að hann fái að hefja skólagöngu hjá Klettabæ.

Hún kveðst ekki geta sent hann aftur í hefðbundinn skóla, eftir þá reynslu sem hann hafi þegar haft af skólagöngu.

„Ég mun ekki gera honum það að setja hann aftur í hefðbundinn skóla, vitandi hvaða áhrif það mun hafa á líðan hans og hegðun.“

Lofað fundum en fær enga niðurstöðu

Sigurrós segist ítrekað hafa hringt í borgina til að fá upplýsingar. Hún hafi ekki fengið að ræða við þá sem taki ákvörðun um málið, heldur þurft að koma skilaboðum áleiðis í gegnum þann sem svari símanum.

„Eina sem hefur verið sagt við mig er að það eigi að funda fljótlega, aftur og aftur og aftur. En ég heyri aldrei af neinum fundi sem var haldinn og aldrei berast svör.“

Hún segir að sér hafi jafnframt verið lofað að haft yrði samband við hana, án þess að það hafi gengið eftir. Hún hafi loks ákveðið að leita til fjölmiðla til að vekja athygli á stöðunni og fá hreyfingu á málið. Hún lýsir þeirri tilfinningu að hjá borginni sé sonur hennar aðeins kennitala á blaði.

Einangrunin farin að hafa áhrif

Biðin hefur að sögn Sigurrósar þegar haft alvarleg áhrif á Rökkva. Hann sé einmana og einangraður, hafi lítið fyrir stafni og upplifi að hann skipti ekki máli. Hann hafi loksins fundið stað þar sem honum leið vel, en skilji ekki hvers vegna hann fái ekki að fara þangað í skóla.

Hún segir jafnframt að hann sé aftur farinn að tala um sjálfsvíg og óttast að sá bati sem varð í sumar sé að glatast. Hún segir hann leggja sig mikið fram og hafa skýrar hugmyndir um hvert hann vilji stefna í lífinu.

Umboðsmaður barna býðst til að leita svara

Sigurrós hefur einnig leitað til umboðsmanns barna. Í skriflegu svari sem Nútíminn hefur undir höndum kemur fram að embættið hafi ekki heimild til að endurskoða ákvarðanir sveitarfélaga um hvar einstakt barn skuli sækja skóla. Það geti hins vegar óskað eftir upplýsingum um töfina og lagt áherslu á að Rökkvi fái nauðsynlegan stuðning.

„Það er búið að finna það sem virkar fyrir hann. Lausnin er til, hún er í boði“

„Það sem embættið getur hins vegar gert er að óska eftir upplýsingum frá Reykjavíkurborg um ástæður þess að svör hafa ekki borist og leggja áherslu á mikilvægi þess að sonur þinn fái þann stuðning sem hann þarf til að geta sótt skóla án frekari tafa,“ segir í svarinu.

Í samskiptunum er jafnframt lögð áhersla á að lausn verði fundin í samráði við foreldra og fagfólk, með hagsmuni og þarfir barnsins að leiðarljósi.

Borginni ber að tryggja skólavist

Samkvæmt grunnskólalögum er börnum á aldrinum sex til sextán ára að jafnaði skylt að sækja grunnskóla. Í 5. grein laganna er sveitarfélögum jafnframt gert skylt að tryggja að skólaskyld börn sem þar eiga lögheimili njóti skólavistar. Þau bera einnig ábyrgð á sérúrræðum grunnskóla.

Í 13. grein er kveðið á um rétt nemenda til kennslu sem hæfir þeim og námsumhverfis sem tekur mið af þörfum þeirra og vellíðan. Þá tryggir 17. grein nemendum með tilteknar stuðningsþarfir rétt til sérstaks stuðnings í samræmi við metnar þarfir þeirra. Við ágreining um fyrirkomulag skólavistar skal taka mið af áliti sérfræðinga og heildarhagsmunum barnsins.

Sigurrós segir að þegar sé búið að finna úrræði sem virki fyrir hann.

„Það er búið að finna það sem virkar fyrir hann. Lausnin er til, hún er í boði.“

Nútíminn hefur sent skóla- og frístundasviði Reykjavíkurborgar fyrirspurn um málið og óskað skýringa á töfinni og svörum um hvenær Rökkvi geti hafið skólagöngu. Svör borgarinnar verða birt þegar þau berast. Borgin hefur staðfest móttöku skilaboðanna.

#fann #hjálpaði #loks #sem #úrræði

Upprunaleg slóð:
https://www.nutiminn.is/forsida/fann-loks-urraedi-sem-hjalpadi-syninum-nu-bidur-hann-eftir-samthykki-borgarinnar-til-ad-hefja-skolagongu-en-maetir-aerandi-thogn/

📰 Aðrar fréttir

Dóra Sif Tynes: Bókun 35 gengur út á að Íslendingar séu jafnsettir öðrum borgurum EES
📅 09.10.2026 👁️ 1
Dóra Sif Tynes: Bókun 35 gengur út á að Íslendingar séu jafnsettir öðrum borgurum EES
Það er alveg ljóst að bókun 35 tekur aðeins til jafnsettra laga, þ.e.
Hrafnhildur hafði ekki áhyggjur af fæðingarblettinum en svo kom annað í ljós
📅 09.10.2026 👁️ 1
Hrafnhildur hafði ekki áhyggjur af fæðingarblettinum en svo kom annað í ljós
„Ég var í rauninni bara mjög heppin,“ segir Hrafnhildur sem greindist með sortuæxli.
Bein út­sending: Af minkum og mönnum - Vísir
📅 09.10.2026 👁️ 1
Bein út­sending: Af minkum og mönnum - Vísir
Málþingið hefst klukkan 17 og verður hægt að fylgjast með í beinu streymi í spilaranum að neðan. „Á dagskrá verða erindi íslenskra og erlendra sérfræð...
Þingmenn stálust í sund eftir lokun í kjördæmaviku
📅 09.10.2026 👁️ 1
Þingmenn stálust í sund eftir lokun í kjördæmaviku
Nokkrir þingmenn Norðausturkjördæmis skelltu sér í sund eftir lokun í Selárlaug í Vopnafirði í kjördæmaviku Alþingis í síðustu viku. Einn þeirra segir...
Þau vilja stýra Fjöl­miðla­nefnd - Vísir
📅 09.10.2026 👁️ 1
Þau vilja stýra Fjöl­miðla­nefnd - Vísir
Elfa Ýr Gylfadóttir, sem setið hefur sem framkvæmdastjóri Fjölmiðlanefndar frá stofnun hennar árið 2011, tilkynnti í ágúst að hún myndi ekki sækjast e...
Um hvað var samið á síðustu sekúndu í gær?
📅 09.10.2026 👁️ 1
Um hvað var samið á síðustu sekúndu í gær?
Samkomulag VR við Samtök atvinnulífsins náðist klukkan 15:59 í gær, aðeins mínútu áður en frestur til að segja upp kjarasamningum rann út. Ýmislegt he...
Þrír ung­lingar á breyttu hjóli en VÍS ber samt á­byrgð - Vísir
📅 09.10.2026 👁️ 2
Þrír ung­lingar á breyttu hjóli en VÍS ber samt á­byrgð - Vísir
Í þremur samhljóða dómum Landsréttar, sem kveðni voru upp í gær, segir að atvik málsins hafi orðið aðfaranótt mánudags í ágúst árið 2021, þegar árekst...
Læknir segir sjúklinga látna kveljast – „Ekki bara tölur heldur raunverulegar manneskjur“
📅 09.10.2026 👁️ 2
Læknir segir sjúklinga látna kveljast – „Ekki bara tölur heldur raunverulegar manneskjur“
„Yfir hundrað manns bíða nú sárþjáðir eftir því að fá bót meina sinna,“ segir Halldór Skúlason, heila- og taugaskurðlæknir hjá Orkuhúsinu, í aðsendri ...
Fimm ára dómur í bílakjallaramálinu og einn sýknaður – Voru ákærðir fyrir tilraun til manndráps
📅 09.10.2026 👁️ 2
Fimm ára dómur í bílakjallaramálinu og einn sýknaður – Voru ákærðir fyrir tilraun til manndráps
Fyrir skammri stundu var kveðinn upp dómur í Héraðsdómi Reykjavíkur yfir þremenningunum Kareem M. M. Abufarhah, Qossay Ali Yahya Alsadi og Mohamed Say...
Stuðningsaðgerðir ríkisstjórnarinnar við kjarasamningana kosta um 1,5 milljarð
📅 09.10.2026 👁️ 2
Stuðningsaðgerðir ríkisstjórnarinnar við kjarasamningana kosta um 1,5 milljarð
Daði Már Kristófersson fjármála- og efnahagsráðherra segir að kostnaðurinn við aðgerðir ríkisstjórnarinnar til stuðnings kjarasamningum sé um einn og ...
Einn fékk fimm ár, annar á­tján mánuði en þriðji sýknaður - Vísir
📅 09.10.2026 👁️ 2
Einn fékk fimm ár, annar á­tján mánuði en þriðji sýknaður - Vísir
Þetta segir Silja Rán Arnarsdóttir, sem sótti málið fyrir hönd ákæruvaldsins, í samtali við Vísi. Í ákæru var Kareem sagður hafa ekið Land Rover-bifre...
Prize-winning image which sparked backlash was AI-generated, Nikon rules
📅 09.10.2026 👁️ 0
Prize-winning image which sparked backlash was AI-generated, Nikon rules
The camera-maker says it is now re-evaluating the rules and procedures of its Small World in Motion contest.
„Ég held að við séum komin út í öfgar“
📅 09.10.2026 👁️ 2
„Ég held að við séum komin út í öfgar“
Kostnaður við íþróttaiðkun barna getur hlaupið á hundruðum þúsunda á ári, samkvæmt úttekt ASÍ.Þegar fleira en eitt barn er á heimilinu og börnin stund...
Húsið helmingi dýrara tveimur árum síðar - Vísir
📅 09.10.2026 👁️ 1
Húsið helmingi dýrara tveimur árum síðar - Vísir
Húsið er teiknað af Kjartani Sveinssyni, var byggt árið 1978 og hefur verið endurnýjað mikið á síðustu sex árum. Húsið er 242 fermetrar á þremur pöllu...
Nationwide cashier to repay £12k after stealing from customers
📅 09.10.2026 👁️ 2
Nationwide cashier to repay £12k after stealing from customers
Kelly Kershaw stole from vulnerable customers to fund a safari in Africa and a trip to Paris.
Ætla að „binda enda“ á stríðsglæpadómstól - Vísir
📅 09.10.2026 👁️ 2
Ætla að „binda enda“ á stríðsglæpadómstól - Vísir
Rubio tilkynnti þessar nýju aðgerðir, meðal annars í myndbandi sem birt var á samfélagsmiðlum. „Við munum banna öll viðskipti við þennan óstýriláta dó...
Karitas segir frá rýmingu Grindavíkur og ofbeldi afa síns
📅 09.10.2026 👁️ 2
Karitas segir frá rýmingu Grindavíkur og ofbeldi afa síns
Karitas Nína Viðarsdóttir hefur sent frá sér bókina „Neyðarástand: Dagbók móður úr Grindavík“ en um er að ræða hljóðbók sem Storytel gefur út. Í bókin...
Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar: Skuldahali er vondur lífsförunautur
📅 09.10.2026 👁️ 2
Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar: Skuldahali er vondur lífsförunautur
Það er mikilvægt að búa yfir sæmilegu fjármálalæsi og að ungu fólki sé kennt að fara með peninga. Það er hins vegar allur gangur á því hversu mikla ke...
Ung kona fannst látin í flugsæti sínu eftir lendingu
📅 09.10.2026 👁️ 2
Ung kona fannst látin í flugsæti sínu eftir lendingu
Kona á þrítugsaldri fannst látin við lendingu í flugvél í Mexíkó. Farþegar voru byrjaðir að fara úr vélinni þegar það uppgötvaðist að hún var látin.Br...
Katrín fagnar úrskurði í laxeldismálinu á Seyðisfirði – „Þetta eru STÓRKOSTLEGAR fréttir“
📅 09.10.2026 👁️ 2
Katrín fagnar úrskurði í laxeldismálinu á Seyðisfirði – „Þetta eru STÓRKOSTLEGAR fréttir“
Katrín Oddsdóttir, lögmaður náttúruverndarsinna, greinir frá því að Úrskurðarnefnd umhverfis og auðlindamála hafi rétt í þessu fellt úr gildi synjun H...
Staða mannréttindamála getur enn hægt á aðildarviðræðum Tyrkja
📅 09.10.2026 👁️ 2
Staða mannréttindamála getur enn hægt á aðildarviðræðum Tyrkja
Marta Kos, stækkunarstjóri Evrópusambandsins, er stödd í Tyrklandi og varar við að staða mannréttindamála geti enn frekar hægt á umsóknarferli landsin...
Concerns raised over new 6,288-panel solar farm near Puerto del carmen
📅 09.10.2026 👁️ 2
Concerns raised over new 6,288-panel solar farm near Puerto del carmen
A proposed new solar farm containing 6,288 photovoltaic panels near Puerto del Carmen has been opposed by Tías Council over concerns about its potenti...
Widdecombe suspect had 'particular hostility to Reform', court told
📅 09.10.2026 👁️ 2
Widdecombe suspect had 'particular hostility to Reform', court told
Kerry is charged with the murder of the 78-year-old former Conservative minister and Reform UK spokeswoman.
Lík­legt að Ís­lendingar finni ó­beint fyrir El niño - Vísir
📅 09.10.2026 👁️ 2
Lík­legt að Ís­lendingar finni ó­beint fyrir El niño - Vísir
Gert er ráð fyrir einstaklega miklum veðuröfgum fram á næsta ár vegna fordæmalauss El niño í Kyrrahafi sem leggst ofan á hnattræna hlýnun sem menn val...
Lib Dem MP quits frontbench job over Ed Davey's leadership
📅 09.10.2026 👁️ 2
Lib Dem MP quits frontbench job over Ed Davey's leadership
Deputy party leader Daisy Cooper says "the vast majority of our MPs support Ed... and are furious at this distraction."
Ísraelskum ferða­mönnum mis­munað á veitinga­stað vegna upp­runa - Vísir
📅 09.10.2026 👁️ 3
Ísraelskum ferða­mönnum mis­munað á veitinga­stað vegna upp­runa - Vísir
Kærunefndin komst að því að eigandi veitingastaðarins braut gegn lögum um jafna meðferð utan vinnumarkaðar með því að neita ísraelskum manni og maka h...
Svarar loksins spurningunni á allra vörum um nektarsenuna í Gone Girl
📅 09.10.2026 👁️ 3
Svarar loksins spurningunni á allra vörum um nektarsenuna í Gone Girl
Leikarinn og leikstjórinn Ben Affleck hefur nú loks svarað spurningunni á allra vörum um nektarsenu í kvikmyndinni Gone Girl. Þar mátti sjá persónuna ...
Óskar svara eftir að faðir missti dóttur sína er­lendis - Vísir
📅 09.10.2026 👁️ 3
Óskar svara eftir að faðir missti dóttur sína er­lendis - Vísir
Dótturinni hafði verið vísað til meðferðar á sjúkrahúsinu og Sjúkratryggingar greitt fyrir hana. Faðirinn taldi eftirliti íslenskra yfirvalda með meðf...
Þórður Snær segir að þjóðinni hafi verið seld lygi um fríverslunarsamning við Bandaríkin – „Aldrei láta plata ykkur aftur“
📅 09.10.2026 👁️ 3
Þórður Snær segir að þjóðinni hafi verið seld lygi um fríverslunarsamning við Bandaríkin – „Aldrei láta plata ykkur aftur“
Þórður Snær Júlíusson, framkvæmdastjóri þingflokks Samfylkingar, segir að stjórnarandstaðan, og sérstaklega Sjálfstæðisflokkurinn, hafi selt þjóðinni ...
Fólk getur prentað sína eigin „Appelsínugulu plágu“
📅 09.10.2026 👁️ 3
Fólk getur prentað sína eigin „Appelsínugulu plágu“
Danski listamaðurinn Jens Galschiøt, sem hannaði listaverkið „Appelsínugula plágan“ hefur gefið út líkan fyrir þrívíddarprentun verksins. Líkanið er ó...
Athafnamaðurinn látinn laus en settur í farbann
📅 09.10.2026 👁️ 3
Athafnamaðurinn látinn laus en settur í farbann
Ekki var krafist frekara gæsluvarðhalds yfir athafnamanni á sextugsaldri sem handtekinn var við komu til landsins frá Portúgal þann 4. október.Þess í ...
Segir sáttina kosta ríkis­sjóð 1,6 milljarða til við­bótar - Vísir
📅 09.10.2026 👁️ 3
Segir sáttina kosta ríkis­sjóð 1,6 milljarða til við­bótar - Vísir
Kristrún segir stærsta muninn á aðgerðunum nú og því sem síðustu ríkisstjórnir hafi gert vera að útgjöldin séu ekki aðalatriðið heldur útfærsla og afm...
Skólum lokað eftir á­rásir og tíu hand­teknir vegna hótana - Vísir
📅 09.10.2026 👁️ 3
Skólum lokað eftir á­rásir og tíu hand­teknir vegna hótana - Vísir
Í gær (fimmtudag) myrti fimmtán ára strákur húsvörð í skóla nærri Wyszków. Hann var vopnaður hníf og særði tvo til viðbótar, þar á meðal skólastjórann...
„Svo líða nokkur ár og þá þarf aftur að leggja á nýjan skatt“
📅 09.10.2026 👁️ 3
„Svo líða nokkur ár og þá þarf aftur að leggja á nýjan skatt“
Frestur til að skila inn umsögnum og athugasemdum við frumvarp atvinnuvegaráðherra um nýtt náttúru- og innviðagjald rann út 7. október. Alls bárust 35...
Mótmælaalda fer yfir Evrópu – Óánægja með húsnæði, dýrtíð og stefnu stjórnvalda
📅 09.10.2026 👁️ 3
Mótmælaalda fer yfir Evrópu – Óánægja með húsnæði, dýrtíð og stefnu stjórnvalda
Leigjendur tjalda á torgum, nemendur loka aðgangi að skólum og tugþúsundir ganga út á götur. Mótmæli hafa undanfarna vikur sett svip sinn á fjölda Evr...
Athafnamaður úr gæsluvarðhaldi í farbann
📅 09.10.2026 👁️ 3
Athafnamaður úr gæsluvarðhaldi í farbann
Athafnamaður á sextugsaldri er laus úr gæsluvarðhaldi sem hann var hnepptur í á mánudag. Hann hefur verið úrskurðaður í tveggja vikna farbann.Maðurinn...
Einn slasaður eftir harðan árekstur rétt fyrir utan Akureyri
📅 09.10.2026 👁️ 3
Einn slasaður eftir harðan árekstur rétt fyrir utan Akureyri
Einn var fluttur á sjúkrahús eftir tveggja bíla árekstur við Hlíðarbæ, á þjóðveginum, rétt norðan við Akureyri fyrir skemmstu.Sex farþegar voru í bíl ...
Kannast ekkert við brot og munu að­stoða við rann­sókn - Vísir
📅 09.10.2026 👁️ 3
Kannast ekkert við brot og munu að­stoða við rann­sókn - Vísir
Líkt og fjallað hefur verið um tilkynnti Bera, móðurfélag Ölgerðarinnar og fleiri fyrirtækja, í morgun að Samkeppniseftirlitið hefði ráðist í húsleit ...
Úr­skurðaður í far­bann - Vísir
📅 09.10.2026 👁️ 3
Úr­skurðaður í far­bann - Vísir
Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu. Maðurinn var síðastliðinn mánudag úrskurðaður í gæsluvarðhald í þágu rannsóknar m...
Stjórnendur Beru og Ölgerðarinnar kannast ekki við brot
📅 09.10.2026 👁️ 4
Stjórnendur Beru og Ölgerðarinnar kannast ekki við brot
Forsvarsmenn Beru og Ölgerðarinnar segjast ekki kannast við að fyrirtækið hafi misnotað markaðráðandi stöðu sína á drykkjarvörumarkaði. Þeir segja að ...
Skúli Mogensen svarar skrifum Sifjar um baðlón fullum hálsi - „Mér hefur aldrei dottið í hug að kvarta yfir því“
📅 09.10.2026 👁️ 4
Skúli Mogensen svarar skrifum Sifjar um baðlón fullum hálsi - „Mér hefur aldrei dottið í hug að kvarta yfir því“
Ríkisstjórnin leggur fram í fjárlagafrumvarpi fyrir næsta ár að baðlónum og gufuböðum verði gert að greiða hefðbundinn virðisaukaskatt, 24%, frekar en...
Fékk tilboð frá iðnaðarmanni og rak upp stór augu – „Hvað finnst ykkur um það?“
📅 09.10.2026 👁️ 4
Fékk tilboð frá iðnaðarmanni og rak upp stór augu – „Hvað finnst ykkur um það?“
Líflegar umræður hafa skapast á Facebook-síðunni Vertu á verði – eftirlit með verðlagi eftir að einn meðlimur hópsins greindi frá því að hafa fengið t...
Viðskiptavinir Íslandsbanka varaðir við – Ekki falla í þessa gildru
📅 09.10.2026 👁️ 4
Viðskiptavinir Íslandsbanka varaðir við – Ekki falla í þessa gildru
Íslandsbanka hafa borist tilkynningar um svikatilraunir þar sem hringt er í viðskiptavini bankans og hringjendur gefa sig út fyrir að starfa hjá banka...
Hotels asked to dim lights to help save young seabirds in Fuerteventura
📅 09.10.2026 👁️ 4
Hotels asked to dim lights to help save young seabirds in Fuerteventura
Hotels, businesses and residents across Fuerteventura are being asked to reduce unnecessary outdoor lighting during October and November to help prote...
Í beinni: Gervigreind og framtíðin sem við veljum
📅 09.10.2026 👁️ 4
Í beinni: Gervigreind og framtíðin sem við veljum
Gervigreindin og ákvarðanataka framtíðarinnar eru til umfjöllunar á sérstökum viðburði Hringborði Norðurslóða, Arctic Circle, í dag.The Humanity Dilem...
Navi Pillay, former UN human rights chief, wins Nobel Peace Prize
📅 09.10.2026 👁️ 2
Navi Pillay, former UN human rights chief, wins Nobel Peace Prize
Pillay is recognised for her "efforts to promote peace and international law", the Norwegian Nobel Committee says.
Fury vs Joshua: Tickets priced up to £13,000 for all-British showdown sell out in one hour
📅 09.10.2026 👁️ 3
Fury vs Joshua: Tickets priced up to £13,000 for all-British showdown sell out in one hour
Tickets for Tyson Fury and Anthony Joshua's fight at Cardiff's Principality Stadium sells out in just one hour.
Anthropic bans users from being 'cruel' to its AI systems
📅 09.10.2026 👁️ 4
Anthropic bans users from being 'cruel' to its AI systems
The firm said users can no longer engage in "sustained and needless" abusive behaviour towards the tech.
Bæði formaður VR og Eflingar hafi rétt fyrir sér
📅 09.10.2026 👁️ 4
Bæði formaður VR og Eflingar hafi rétt fyrir sér
Formenn Eflingar og Starfsgreinasambandsins segja ekkert nýtt í aðgerðarpakka stjórnvalda til að liðka fyrir samningum, sem var kynntur í gær. Þeir sa...
Nýtt fegurðarskyn Íslendinga
📅 09.10.2026 👁️ 4
Nýtt fegurðarskyn Íslendinga
Nýtt fegurðarskyn Íslendinga Spurn­ing­ar vakna um skil­grein­ingu lyk­il­hug­taka sem varða mestu verð­mæti og mik­il­væg­asta verk­efni Ís­lend­inga...