Nokkrir þingmenn Norðausturkjördæmis skelltu sér í sund eftir lokun í Selárlaug í Vopnafirði í kjördæmaviku Alþingis í síðustu viku. Einn þeirra segir sveitarstjórnarfulltrúa hafa gefið leyfi fyrir sundferðinni og leiðbeint þeim hvernig þeir ættu að bera sig að.
Kjördæmavika Alþingis var í síðustu viku. Formleg dagskrá var á Vopnafirði á miðvikudag, en kvöldið áður sóttu þingmenn Norðausturkjördæmis kynningu frá Six Rivers, fyrirtæki Jims Ratcliffe, og kvöldverð á hótelinu Fossgerði ásamt fulltrúum úr sveitarstjórn Vopnafjarðarhrepps.
Þórarinn Ingi Pétursson, þingmaður Framsóknarflokksins, staðfestir í samtali við fréttastofu að menn hafi farið í sund eftir lokun í Selárlaug á þriðjudagskvöldið, með leyfi sveitarstjórnarfulltrúa. Hann segir hugmyndina hafa komið til tals og að þeim hafi verið leiðbeint hvernig þeir ættu að komast í laugina. Þingmenn hafi farið í sund ásamt nokkrum heimamönnum og gengið frá eftir sig að því loknu.
Ekkert leyfi og oddviti brýndi fyrir sínu fólki að taka ekki þátt
Stefán Guðnason, oddviti sveitarstjórnar í Vopnafjarðarhreppi, segir það hafa komið til tals yfir kvöldverðinum á Fossgerði að það væri spennandi að fara í sund. Hann hafi brýnt fyrir sveitarstjórnarfólkinu að það skyldi ekki taka þátt slíku.
Hann segir vitað til þess að heimamenn fari stundum í sund utan opnunartíma því áður fyrr hafi sundlaugin alltaf verið opin. Það sé ekkert verið að eltast við það meðan fólk gangi vel um og sé ekki með neitt vesen. Það sé þó ekkert leyfi gefið fyrir slíku og fólk sé þar á eigin ábyrgð.
Tjáir sig ekki um annað en formlega dagskrá
Aðrir þingmenn hafa ekki gengist við því að hafa farið í sundlaugina eftir lokun, en samkvæmt heimildum fréttastofu voru þar fimm þingmenn úr þremur flokkum sem eru í minnihluta á Alþingi.
Þorgrímur Sigmundsson, þingmaður Miðflokksins, segist í samtali við fréttastofu ekki ætla að tjá sig um það sem fram fór utan formlegrar dagskrár í kjördæmavikunni. Ingibjörg Isaksen, þingmaður Framsóknarflokksins, bað um að fá að hringja til baka í fréttamann þegar erindið var borið upp.
Ekki hefur náðst í Sigmund Davíð Gunnlaugsson, formann Miðflokksins og þingmann Norðausturkjördæmis, né Jens Garðar Helgason, þingmann Sjálfstæðisflokksins. Njáll Trausti Friðbertsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, tók ekki þátt í kvöldverðinum á Fossgerði.