Daði Már Kristófersson fjármála- og efnahagsráðherra segir að kostnaðurinn við aðgerðir ríkisstjórnarinnar til stuðnings kjarasamningum sé um einn og hálfur milljarður króna. Hann segir útspilið ekki hafa áhrif á hallaleysi fjárlaga.
„Svigrúmið sem við höfum í fjárlögum núna leyfir það,“ segir hann.
Aðilar vinnumarkaðarins náðu samkomulagi rétt áður en frestur til uppsagnar kjarasamninga rann út í gær. Tilkynnt var um þrettán aðgerðir se ríkisstjórnin ætlaði að ráðast í til stuðnings kjarasamningum sem snúa meðal annars að húsnæðismálum og þróun barnabóta.
„Þetta er mikið fagnaðarefni og ég er mjög ánægður með þá ábyrgð sem aðilar vinnumarkaðarins hafa sýnt að ljúka þessu með sameiginlegu átaki,“ segir Daði.
Hann kveðst bjartsýnn á að þetta skili sér í lækkun vaxta og verðbólgu.