Fyrir skammri stundu var kveðinn upp dómur í Héraðsdómi Reykjavíkur yfir þremenningunum Kareem M. M. Abufarhah, Qossay Ali Yahya Alsadi og Mohamed Sayidali Ahmed en þeir voru ákærðir fyrir tilraun til manndráps vegna árásar á mann í bílakjallara við Þórunnartún í Reykjavík aðfaranótt 17. mars 2026. Samkvæmt ákæru óku mennirnir að honum og réðust síðan á hann með barsmíðum auk þess sem hann var stunginn með óþekktu áhaldi.
Fimm ára dómur í bílakjallaramálinu og einn sýknaður – Voru ákærðir fyrir tilraun til manndráps