Formenn Eflingar og Starfsgreinasambandsins segja ekkert nýtt í aðgerðarpakka stjórnvalda til að liðka fyrir samningum, sem var kynntur í gær. Þeir saka önnur stéttarfélög um fjölmiðlasirkus.
Halla Gunnarsdóttir formaður VR segir hins vegar að vaxtabótaauki sem samdist um við forsætisráðherra hafi liðkað fyrir samningum á síðustu stundu.
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar segir að vaxtabótaaukinn hafi verið í aðgerðarpakka stjórnvalda sem stéttarfélögin fengu á þriðjudagskvöld.
„Bæði er rétt,“ segir Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra.
Hugmyndin fæddist í vikunni
„Við erum búin að vera í vinnu síðan í maí með SA og ASÍ að aðgerðarlista. Vaxtabætur voru ekki framan af í þessari vinnu. Þessi hugmynd fæddist núna í vikunni, þannig að þetta er á síðustu metrunum. Það er rétt að þetta hafi komið fram, þessi hugmynd í pósti á þriðjudaginn. Hún var endanlega útfærð í þeirri mynd sem hentaði öllum í gær, þannig að báðir aðilar hafa rétt fyrir sér,“ bætir hún við.
Kristrún segir að það sé margt í aðgerðarlista stjórnvalda sem henti stéttarfélögum og þau geti verið stolt af árangrinum sem þau náðu.
„Ég skil að á lokametrunum skapast alls konar pressa, það er ekki mitt að taka endilega þátt í því. Ég ber ábyrgð á því að gera það sem ég get til að liðka fyrir samningum og við í ríkisstjórninni. Að lokum eru það þessir aðilar sem komu sér saman um að halda samningunum,“ segir Kristrún jafnframt.
1,6 milljarðar á næsta ári
En hvað kostar þetta útspil ríkisstjórnarinnar til samninganna?
„Viðbótarkostnaður vegna þessara aðgerða er 1,6 milljarðar króna á næsta ári. Þetta eru útgjöld sem að við vissum að gætu komið til, við höfum ákveðið svigrúm inn í afkomunni af því að hún er nokkrir milljarðar eins og fjárlögin voru lögð fram.“
„Síðan eru fjárheimildir sem eru uppsafnaðar sem sitja svona svo til að bókun ríkisins nú þegar og hafa ekki gengið út, eins og í barnabótakerfinu af því að skerðingar hafa ekki hreyfst eða í stofnframlögum til almenna íbúakerfisins vegna þess að íbúðauppbygging hefur verið hæg. Við erum með aðgerðir á þessum lista til að liðka fyrir þessu þannig að heildarkostnaður er mjög takmarkaður á næsta ári,“ segir Kristrún jafnframt.