Frestur til að gera athugasemdir við áform Umhverfis- og orkustofnunar um að veita Samherja bráðabirgðastarfsleyfi til fiskþurrkunar á Laugum í Reykjadal rennur út á mánudag. Vinnslan hefur verið lokuð frá því um miðjan september. Um 20 starfsmenn störfuðu þar. Atvinnu- og nýsköpunarnefnd Þingeyjarsveitar væntir þess að starfsemin hefjist að nýju sem allra fyrst.
„Þetta er bráðabirgðaleyfi til eins árs og snýr að því að það þurfi að rannsaka áhrif á vatnshlot og fleira. Við erum búin að setja þetta á dagskrá hjá umhverfisnefnd hjá okkur því hluti fráveitunnar hjá okkur er með sama viðtaka. Við erum líka að reyna að skoða það sem snýr að sveitarfélaginu,“ segir Katrín Sigurjónsdóttir, sveitarstjóri í Þingeyjarsveit.
Leyfið afturkallað eftir kæru íbúa
Úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála afturkallaði starfsleyfi Samherja á Laugum 17. september. Þar hefur verið fiskþurrkun frá 1980.
Eftir ítrekaðar kvartanir ákváðu fimm íbúar að kæra starfsleyfið sem var endurnýjað í júní. Það var afturkallað vegna þess að nefndin taldi að ekki væri nægilega vel gætt að vatnsvernd í rekstrinum og að vatnsgæði á Laugum gætu versnað ef starfsemin fengi að halda áfram.
„Sveitarstjórnin bara styður við það sem er sveitarfélaginu mikilvægt. Þessi starfsemi er sveitarfélaginu mjög mikilvæg og þetta fyrirtæki. Hvernig starfsemi sem er í þessu húsnæði, ef þetta skapar 20 störf þá er þetta gríðarlega mikilvægt fyrir samfélagið. En svo er þessi togstreita til staðar og við vitum alveg af henni og það þarf að vinna með það líka.“