Bandaríski leikarinn Keegan Allen, sem er þekktastur fyrir hlutverk sitt í sjónvarpsþáttunum Pretty Little Liars, varð fyrir vopnuðu ráni í vesturhluta Hollywood í gærkvöldi. Tveir grímuklæddir menn réðust á leikarann, börðu hann í höfuðið og hótuðu honum lífláti áður en þeir höfðu á brott með úr hans.Allen, sem er 37 ára og lék Toby í þáttunum vinsælu, var staddur á bílastæði fyrir utan lúxusmatvöruverslunina Laurel Supply þegar mennirnir réðust að honum. Öryggismyndavélar náðu árásinni á myndband.
Pretty Little Liars stjarna alblóðug eftir vopnað rán: „Þeir tóku úrið mitt - Fjandinn hafi það“