Samkeppniseftirlitið hefur ráðist í húsleit hjá Beru vegna gruns um að dótturfélag þess, Ölgerðin Egill Skallagrímsson, hafi gerst sekt um markaðsmisnotkun. Rannsóknin beinist að meintum brotum sem eiga að hafa verið framin undanfarin sex ár.
Kveikur hefur verið að rannsaka þessi mál síðustu mánuði og verður það til umfjöllunar í þættinum.
Bera tilkynnti Kauphöllinni um húsleitina á ellefta tímanum í dag. Þar sagði að Samkeppniseftirlitið hefði hafið húsleit og tilkynnt félaginu að það hefði hafið mál vegna rannsóknar á ætluðum brotum Ölgerðarinnar Egils Skallagrímssonar.
Rannsóknin byggir á ákvæðum samkeppnislaga sem banna markaðsráðandi fyrirtækjum að misnota aðstöðu sína. Rannsóknin beinist að starfsemi Ölgerðarinnar á sex ára tímabili, frá 2020 til dagsins í dag.
Samkeppniseftirlitið fékk heimild Héraðsdóms Reykjavíkur til að ráðast í húsleit.
Verð hlutabréfa í Beru lækkaði eftir að tilkynnt var um húsleitina, fór úr genginu 14,70 í 14,00 en hækkaði síðan í 14,40. Það er sama verð og við opnun markaðar í morgun því hlutabréfaverð hafði farið úr genginu 14,40 í 15,00 áður en það seig nokkuð fram að tilkynningunni og féll á.
Fréttin hefur verið uppfærð.