Í tilefni af tendrun súlunnar býður Reykjavíkurborg upp á fjölbreytta og hátíðlega dagskrá með leiðsögnum, listasmiðju, tónlistarflutningi og ávarpi borgarstjóra. Farið er yfir dagskrána í frétt hér að neðan:
Í tilefni af yfirvofandi tendrun Friðarsúlunnar ákvað blaðamaður að ýta á eftir fyrirspurn sem fyrrverandi samstarfsmaður hans sendi Reykjavíkurborg í október í fyrra og varðaði rekstrarkostnað listaverksins. Svar við þeirri fyrirspurn barst ekki, þrátt fyrir ítrekun í nóvember í fyrra, fyrr en ýtt var á eftir henni í september síðastliðnum. Þá barst svar samdægurs.
Í svarinu segir að á tímabilinu 2007 til 2025 hafi 54,8 milljónum króna verið varið í perur, varahluti og annan efniskostnað. Aðkeypt vinna, svo sem rafvirkja, tæknimanna og verkfræðinga, hafi kostað 43,9 milljónir króna og rafmagn 11,7 milljónir króna.
Samtals gerir það kostnað upp á 96,4 milljónir króna á þeim 19 árum sem kveikt hefur verið á súlunni í nokkra mánuði, frá fæðingardegi Johns Lennon þann 9. október til dánardags hans þann 8. desember.
Í þeirri upphæð hefur styrkur upp á 14 milljónir króna verið dreginn frá en samkvæmt svarinu veittu Yoko Ono, Orkuveitan og Reykjavíkurborg styrkinn vegna endurnýjunar á búnaði árið 2024. Ekki er tiltekið hvernig styrkurinn skiptist milli veitendanna þriggja.
Heildarkostnaður við rekstur súlunnar nemur því um 110 milljónum króna á nítján árum, eða 5,8 milljónum króna á ári.