Suðurafríski mannréttindalögfræðingurinn Navi Pillay hlýtur friðarverðlaun Nóbels árið 2026. Hún hefur lengi verið öflugur málsvari mannréttinda. Jørgen Watne Frydnes, formaður norsku Nóbelsnefndarinnar, tilkynnti um friðarverðlaunahafann á blaðamannafundi klukkan níu.
Pillay er fædd 1941, er dómari við Alþjóða sakamáladómstólinn og var mannréttindastjóri Sameinuðu þjóðanna frá 2008 til 2014. Hún er fyrsta konan sem stofnaði eigin lögfræðistofu á tíma aðskilnaðarstefnunnar og varð fyrsta konan til að verða dómari við héraðsdómstól. Pillay hefur meðal annars barist fyrir verndun uppljóstrara.
Í tilkynningu nefndarinnar segir að Pillay hafi sjálf mátt þola skipulagða og kerfisbundna mismunun, aðskilnað og útilokun.
„Friðarverðlaun Nóbels árið 2026 eru veitt einstaklingi sem, af miklu hugrekki og heilindum, hefur rutt brautina í mótun alþjóðlegrar réttarskipunar. Handhafi friðarverðlauna Nóbels í ár hefur lagt sitt af mörkum við saksókn vegna stríðsglæpa, glæpa gegn mannkyni og þjóðarmorða,“ segir í yfirlýsingu nefndarinnar.
Með verðlaununum vill Nóbelsnefndin minna heiminn á að réttarkerfið sé hryggjarstykkið sem tryggi frið og friðsamlega lausn deilumála. Friður byggi á réttarreglum og virðingu fyrir þeim.
Alls hafa 143 hlotið friðarverðlaun Nóbels síðan til þeirra var stofnað árið 1901. Fyrsti verðlaunahafinn var Jean Henri Dunant, stofnandi Rauða krossins.
Mannréttindafrömuðurinn Martin Luther King Jr. hlaut verðlaunin árið 1964, Móðir Teresa 1979, Dalai Lama 1989 og árið 1992 hlutu Yasser Arafat, Shimon Peres og Yitzhak Rabin fyrir að leggja sitt af mörkum til friðar í Mið-Austurlöndum með undirritun og aðdraganda Oslóarsamkomulagsins. Maria Corina Machado, leiðtogi stjórnarandstöðunnar í Venesúela, fékk verðlaunin í fyrra.
Verðlaunin verða loks afhent 10. desember við hátíðlega athöfn í ráðhúsi Oslóborgar, á dánardægri Alfreðs Nóbel. Vilji hans var að nöfnum allra tilnefndra sé haldið leyndum hálfa öld innan Nóbelsstofnunarinnar. Tilnefndum eða þeim sem tilnefna er ekki bannað að ljóstra upp um það.
Navi Pillay kveðst telja að rannsókn á framferði Ísraelshers á Gaza hafi tryggt henni friðarverðlaun Nóbels í ár. Í samtali við AP-fréttaveituna segir hún það síðasta sem hún gerði hafa verið að birta niðurstöður rannsóknarinnar. Þar komi skýrt fram að Ísraelsríki sé að fremja þjóðarmorð á Gaza.
UNICEF varð einna fyrst til að óska Pillay til hamingju með verðlaunin. Óbilandi barátta hennar fyrir friði og mannréttindum hafi skipt sköpum fyrir fólk um víða veröld, að sögn Mariu Greenberg Bergheim, framkvæmdastjóra UNICEF.
Hún segir Nóbelsnefndina senda sterk skilaboð með útnefningu Pillay á erfiðum tímum þegar alþjóðlegar friðar- og þróunarstofnanir séu undir meira álagi en nokkru sinni fyrr.
Fréttin var uppfærð með viðbrögðum Pillay og árnaðaróskum UNICEF.