Friðarverðlaunahafi ársins 2026 er Navi Pillay, lögfræður og baráttumaður fyrir mannréttindum. Hún er dómari við Alþjóðlega sakamáladómstólinn (ICC).
Það er Jørgen Watne Frydnes, formaður norsku Nóbelsnefndarinnar sem tilkynnir um verðlaunahafann. Verðlaunin sjálf verða afhent 10. desember í ráðhúsi Oslóborgar, á dánardægri Alfreðs Nóbel. Vilji hans var að nöfnum allra tilnefndra sé haldið leyndum hálfa öld innan Nóbelsstofnunarinnar. Tilnefndum eða þeim sem tilnefna er ekki bannað að ljóstra upp um það. Verðlaunin voru fyrst afhent árið 1901.
Alls hafa 143 hlotið friðarverðlaun Nóbels síðan til þeirra var stofnað árið 1901. Fyrsti verðlaunahafinn var Jean Henri Dunant, stofnandi Rauða krossins.
Mannréttindafrömuðurinn Martin Luther King Jr. hlaut verðlaunin árið 1964, Móðir Teresa 1979, Dalai Lama 1989 og árið 1994 hlutu Yasser Arafat, Shimon Peres og Yitzhak Rabin fyrir að leggja sitt af mörkum til friðar í Mið-Austurlöndum með undirritun og aðdraganda Oslóarsamkomulagsins. Maria Corina Machado, leiðtogi stjórnarandstöðunnar í Venesúela, fékk verðlaunin í fyrra.
Norska Nóbelsverðlananefndin tilkynnir um friðarverðlaunahafa í athöfn sem hefst klukkan níu. Nefndinni bárust alls 287 tilnefningar, um 208 einstaklinga og 79 samtök. Meðal þeirra sem hafa verið nefnd eru Mykola Kuleba, stofnandi úkraínsku samtakanna Björgum börnunum, Nefnd til varnar blaðamönnum og Júlía Navalnaja, ekkja rússneska stjórnarandstöðuleiðtogans Alexei Navalní.