Samkvæmt tilkynningu hefst borun við Engjateig í næstu viku og stendur fram á vor 2027. Borun í Bolholti hefst nokkru síðar og stendur yfir mun skemur. Þá kemur einnig fram að þegar borholan verður prófuð verði gufa sýnileg á framkvæmdasvæðinu. Það sé eðlilegur hluti borunar og verði látið vita af því fyrir fram.
Markmiðið er að auka afhendingaröryggi heita vatnsins og mæta þörfum vaxandi samfélags til framtíðar. Laugardalur eigi sérstakan sess í sögu hitaveitunnar í Reykjavík og jarðhiti á svæðinu hafi yljað Reykvíkingum í nær heila öld. Níu borholur eru nú þegar í notkun á svæðinu samkvæmt tilkynningu Veitna.
„Það er auðvelt að gleyma því í dagsins önn að undir götunum, húsunum og görðunum okkar er jarðhitaauðlind sem gegnir lykilhlutverki í daglegu lífi borgarbúa. Með þessari borun erum við bæði að tryggja þjónustu til framtíðar og halda áfram langri sögu ábyrgrar nýtingar jarðhitans í Reykjavík,“ segir Brynja Ragnarsdóttir, forstöðukona Vatnsmiðla hjá Veitum, í tilkynningu.
Í tilkynningu segir að borun í þéttu borgarumhverfi krefjist vandaðs undirbúnings og framkvæmdasvæðin verði afmörkuð. Veitur munu upplýsa íbúa, rekstraraðila og vegfarendur reglulega meðan á vinnu stendur.
„Jarðhitinn á þessu svæði er vel þekktur, en hver ný hola gefur okkur mikilvægar upplýsingar um auðlindina. Við erum í raun að horfa niður í jarðhitakerfi sem er ósýnilegt frá yfirborði og leita að leiðum til að nýta það með ábyrgum og sjálfbærum hætti,“ segir Þráinn Friðriksson, auðlindaleiðtogi hitaveitu hjá Orkuveitunni.
Nánari upplýsingar, kort af framkvæmdasvæðum og uppfærslur á framvindu má finna á upplýsingasíðu Veitna: Borað eftir heitu vatni í Laugardal.
Umfangsmesta leitin í fimmtíu ár
Samkvæmt vef Veitna hófu þau á árinu umfangsmikla leit að heitu vatni. Í þessu leitarátaki er stefnt á að bora 29 holur á komandi árum, þar af 15 holur í ár. Eitt af markmiðum Veitna er að draga úr áhrifum starfsemi sinnar á loftslagið og því verður borað með rafmagni þar sem því verður komið við, annars verður notast við lífdísel (VLO) sem dregur úr losun um allt að 90% miðað við notkun díselolíu. Fyrr á árinu var fjallað um aðgerðir þeirra í Skammadal í Mosfellsbæ. Þar höfðu íbúar áhyggjur af borun á fuglalíf.