Skógareldar hafa logað í Indónesíu vikum saman og þykkur reykjarmökkur hefur borist yfir til Malasíu, Singapore og Filippseyja. Erfiðlega gengur að hemja skógareldana og mengunin heldur áfram að aukast og dreifast.
Breska ríkisútvarpið segir að skógareldarnir í Indónesíu nú séu þeir verstu síðan 2015. Skógareldarnir eru algengir í landinu en þeir eru fyrst og fremst vegna ólöglegra og ódýrra aðferða bænda og fyrirtækja sem brenna skóga til að gera skóglendi að ræktunarlandi.
Úrkoma á monsúnregntímabilinu hefur verið um 80% undir meðallagi, svo eldarnir hafa breiðst enn hraðar út vegna mikilla þurrka. Yfirvöld hafa varað við því að skógareldarnir gætu staðið fram í nóvember vegna lítillar úrkomu.
Eitraður reykjarmökkur hefur borist frá skógareldunum um Indónesíu og er nú kominn til nágrannalanda. Loftgæði mældust heilsuspillandi í Singapore í september en þetta er í fyrsta sinn síðan 2023 sem loftgæði mælast svo slæm. Íbúar eru hvattir til að takmarka útiveru og drekka nóg af vökva.
Formúla eitt kappaksturinn fer fram í Singapore á sunnudaginn. Skipuleggjendur segja að ef loftgæði versni verði gripið til ráðstafana eins og að dreifa andlitsgrímum og ákvarðanir verði teknar í samvinnu við yfirvöld ef mengunin versnar eða hefur áhrif á skyggni, lýðheilsu eða framkvæmd keppninnar.
Mengunin er einnig farin að hafa áhrif í Malasíu. Skólar í Kuala Lumpur og í Johor-ríki í Malasíu verða lokaðir í dag vegna versnandi loftgæða.