Breska leikkonan Kate Winslet beitti sjarmerandi en jafnframt „ákveðinni“ aðferð til að sannfæra leikstjórann James Cameron eftir að hún hafði farið í prufu fyrir hlutverk Rose í Titanic.Winslet hefur lengi þótt ein af jarðbundnustu og hreinskilnustu stjörnum Hollywood, en Cameron benti á að hún byggi í raun yfir „mjög sterkum og ákveðnum persónuleika“, sem kom skýrt í ljós í ráðningarferlinu fyrir Titanic.
Beitti ákveðinni og sjarmerandi aðferð til að hreppa hlutverkið í Titanic