Zohran Mamdani, borgarstjóri New York-borgar, og heimavarnarráðuneyti Bandaríkjanna hafa staðfest að liðsmenn tolla- og innflytjendaeftirlitsstofnunar Bandaríkjanna, ICE, beri ábyrgð á því að maður var skotinn í borginni í gær.
Mamdami hefur enn fremur greint frá því að fimm ára barn hafi verið í bílnum með manninum en barnið sakaði ekki. Maðurinn var færður á spítala og er enn þá á lífi.
Talsmaður heimavarnarráðuneytisins segir að ICE-liðar hafi ætlað að handtaka ólöglegan innflytjanda frá Dóminíska lýðveldinu sem áður hafði verið sakfelldur fyrir þjófnað og handtekinn nokkrum sinnum fyrir rán, vörslu fíkniefna og ólöglegan vopnaburð.
Mörg hundruð manns mótmæltu í gær
Kathy Hochul, ríkisstjóri New York-ríkis, hefur kallað eftir því að yfirvöld veiti fullan aðgang að upplýsingum um atvikið.
Þá hefur Mamdani sagst munu krefjast þess af Donald Trump Bandaríkjaforseta að ICE-liðum verði gert að yfirgefa New York. Atvikið hafi valdið óróa í borginni en nokkur hundruð manns söfnuðust saman á vettvangi í Manhattan í gærkvöldi og síðar fyrir utan sjúkrahúsið þar sem maðurinn er undir læknishöndum.
ICE hefur verið viðriðið fleiri umdeild atvik á árinu þar sem almennir borgarar hafa látist. Tveir voru til að mynda skotnir til bana í Minneapolis í janúar og leiddi það til háværra mótmæla í borginni og víðar.