Frá þessu er greint í tilkynningu frá bæði íslenskum og kanadískum stjórnvöldum.
Anand á fund með Kristrúnu Frostadóttur forsætisráðherra á morgun og kynnir sér að því loknu aðstæður á öryggissvæðinu á Keflavíkurflugvelli áður en hún heldur af landi brott.
Þorgerður og Anand gáfu í dag út sameiginlega yfirlýsingu á ensku.
Þar kemur fram að Ísland og Kanada, sem norðurskautsríki, hafi ríka hagsmuni af því að tryggja öryggi og stöðugleika á norðurslóðum.
„Í því samhengi lögðu ráðherrarnir áherslu á stuðning sinn við aukna viðveru NATO [Atlantshafsbandalagsins] á norðurslóðum og á Norður-Atlantshafi,“ segir í yfirlýsingu þeirra. Ráðherrarnir hafi sömuleiðis fagnað eflingu samstarfs Íslands og Kanada í öryggis- og varnarmálum í samræmi við uppfærða viljayfirlýsingu sem undirrituð var fyrr á þessu ári.
Samkvæmt yfirlýsingu stjórnarráðsins ræddu ráðherrarnir einnig stuðning við Úkraínumenn, sem hafa varist innrás Rússa í rúmlega fjögur ár, og stöðu mála í Mið-Austurlöndum.
Þá vilji ríkin enn fremur uppfæra fríverslunarsamning sín á milli.
Enn fremur samþykktu ráðherrarnir að koma á fót jarðhitaneti Kanada og Íslands undir forystu sendiráðanna, sem á að leiða saman einkageirann, samstarfsaðila úr röðum frumbyggja og viðeigandi hagaðila innan stjórnsýslunnar til að greina tækifæri til samstarfs, meðal annars í norðlægum og afskekktum samfélögum.