Á morgun, 9. október, er fjörutíu ára afmælisdagur sjónvarps á Sýn sem þar til í fyrra hét Stöð 2. Í tilefni dagsins verður sérstakur afmælisþáttur sýndur á Sýn og Vísi þar sem lykilfólk á stöðinni í gegnum árin kemur saman og óhætt að segja að stuðið sé mikið. Þátturinn hefst klukkan 19:20 í opinni dagskrá.
Jón Jónsson flytur meðal annars afmælislag, Vala Matt og Sóli Hólm fara á kostum auk þess sem framhaldsútgáfa af fyrrnefndum Fóstbræðraskets verður frumsýnd.
Það eru liðin ansi mörg ár síðan Benedikt grét á eldhúsgólfinu heima og Helga Braga leyfði honum að lokum að fara út með strákunum.
Í nýjum skets eru hjónin komin á fund hjónabandsráðgjafa og kannski löngu kominn tími til.
Þátturinn í heild sinni, ásamt nýjum Fóstbræðra-skets og fjölmörgum öðrum skemmtiatriðum, hefst eins og áður segir á Sýn og Vísi klukkan 19:20 annað kvöld.