Landsréttur staðfesti í dag 16 ára fangelsisvist Margrétar Höllu Hansdóttur Löf sem banaði föður sínum á heimili fjölskyldunnar við Súlunes á Arnarnesinu í apríl á síðasta ári. Frá þessu greinir Vísir. Dómurinn var kveðinn upp fyrir luktum dyrum og hefur ekki verið birtur. Eins vísaði Landsréttur kröfu hálfbróður Margrétar, um að hún yrði gerð arflaus, frá dómi. Það sama hafði héraðsdómur gert með vísan til þess að krafan þyrfti að koma frá ákæruvaldinu, sem hún gerði ekki.
Margrét Löf heldur arfinum eftir föðurinn sem hún myrti