Landsréttur hefur staðfest dóm Héraðsdóms um 16 ára fangelsi yfir Margréti Höllu Hansdóttur Löf, fyrir að hafa ráðið föður sínum bana á heimili þeirra í apríl í fyrra og líkamsárás gagnvart móður sinni. Kröfu hálfbróður Margrétar um að hún yrði gerð arflaus var vísað frá dómi, en henni hefur verið gert að greiða honum miskabætur.
Dómur var kveðinn upp við Landsrétt í dag og hefur verið birtur. Vísir greindi fyrst frá.
Dæmd í 16 ára fangelsi í desember
Í desember í fyrra dæmdi Héraðsdómur Reykjaness Margréti Löf til 16 ára fangelsisvistar fyrir að verða föður sínum að bana og fyrir stórfellda líkamsárás gagnvart móður sinni á heimili þeirra að Súlunesi í Garðabæ í apríl 2025. Dómnum var áfrýjað í janúar.
Samkvæmt ákæru beitti Margrét föður sinn margþættu og alvarlegu ofbeldi í aðdraganda andláts hans þann 11. apríl og svipti hann þannig lífi með höggum, spörkum og öðrum brögðum.
Hún hafi veist með ofbeldi að höfði hans, búk og útlimum þannig að hann hlaut fjölmarga áverka, svo sem fjölda rifbeinsbrota, blæðingu í lungnavef og blæðingu í lifrarvef.
Í ákærunni segir að faðir Margrétar hafi verið á flótta út af heimilinu þegar hann örmagnaðist og féll niður í forstofu hússins og lést stuttu síðar af völdum áverkanna.
Árásin ofsafengin og vægðarlaus
Játning Margrétar um ásetning til manndráps né líkamsárásar á foreldra sína liggur ekki fyrir í málinu. Samkvæmt úrskurðinum hefur hún ekki gefið haldbærar skýringar á því mikla og margvíslega ofbeldi sem hún beitti þau umrædda nótt.
Þá kemur fram í ákæru að með tilliti til þeirra áverka sem greindust á móður hennar verði ekki dregin önnur haldbær ályktun en sú að Margrét hafi veist endurtekið og harkalega að móður sinni gagngert í þeim tilgangi að skaða hana. Til þess hafi hún beitt höggum og annarri líkamlegri valdbeitingu, þótt móðir hennar hafi ekki hlotið lífshættulega áverka af. Árásin hafi verið ofsafengin og vægðarlaus í þann tíma sem hún stóð yfir.
Heldur föðurarfinum en gert að greiða hálfbróður miskabætur
Heimildir fréttastofu herma að saksóknari í málinu hafi farið fram á að refsing Margrétar yrði þyngd, úr 16 árum í 17. Ekki kom til þyngingar og staðfesti Landsréttur 16 ára fangelsisdóm Héraðsdóms Reykjaness yfir Margréti. Óslitið gæsluvarðhald frá 11. apríl 2025 kemur til frádráttar þeirri refsingu.
Landsréttur vísaði frá kröfu hálfbróður Margrétar um að hún yrði gerð arflaus. Henni er gert að greiða honum tvær milljónir króna í miskabætur.
Vilhjálmur H. Vilhjálmsson, lögmaður bróður Margrétar Höllu, vildi ekki tjá sig um dóminn þegar eftir því var leitað. Hann segir að ekki hafi komið til skoðunar að svo stöddu hvort dómnum verði áfrýjað. Næstu skref séu óráðin.