Samkomulag náðist á milli VR, Fagfélaganna og LÍV annars vegar og Samtaka atvinnulífsins hins vegar um að kjarasamningar héldu rétt fyrir klukkan fjögur í dag eða í þann mund sem frestur til að segja þeim upp vegna forsendubrests rann út. Formaður VR segir forsætisráðherra hafa lagt hönd á plóg svo að samkomulag næðist.
Bein útsending verður frá fundinum hér að neðan.
Vísir hefur verið í fréttavakt á þessum mikla kjaradegi og má lesa vaktina hér að neðan. Ráð er að endurhlaða fréttinni ef vaktin birtist ekki strax.