Þetta eru að­gerðirnar sem fara á í - Vísir

Þetta eru að­gerðirnar sem fara á í - Vísir

Þetta eru að­gerðirnar sem fara á í - Vísir

Krónutölugjöld sem hafa áhrif á vísitölu munu til að mynda ekki hækka um meira en 2,5 prósent, að kílómetragjaldi undanskildu, og á það sama við þær gjaldskrár ríkisstofnana sem hafa bein áhrif á vísitölu neysluverðs.

Þetta er meðal þess sem kemur fram í tilkynningu frá ríkisstjórninni, Alþýðusambandi Íslands, Samtökum atvinnulífsins og Sambandi íslenskra sveitarfélaga.

Í tilkynningu frá Stórnarráðinu segir að til að ná markmiðum samningsins og tryggja að hann skili árangri muni þessir aðilar sem að honum koma leggjast sameiginlega á árarnar til þess að ná niður verðbólgu og skapa aðstæður fyrir lækkun vaxta.

Nefndar eru sex aðgerðir sem fara á í:

  1. Ríkið mun ekki hækka krónutölugjöld sem hafa bein áhrif á vísitölu neysluverðs á árinu 2027 um meira en 2,5%, að kílómetragjaldi undanskildu vegna kerfisbreytingar á gjaldtöku ökutækja.
  2. Gjaldskrár ríkisstofnana sem bein áhrif hafa á vísitölu neysluverðs munu ekki hækka umfram 2,5% á árinu 2027. Ríkið mun jafnframt beina þeim tilmælum til fyrirtækja í sinni eigu að gæta að verðstöðugleika með því að hækka ekki gjaldskrár opinberrar þjónustu sem hafa bein áhrif á vísitölu neysluverðs umfram 2,5% á árinu 2027.
  3. Í samræmi við ályktun landsþings Sambands íslenskra sveitarfélaga 25. september sl. hvetur sambandið sveitarfélög til að hækka ekki almennar gjaldskrár sínar um meira en 2,5% á árinu 2027. Sérstaklega verði horft til gjaldskráa sem eru undir beinni stjórn sveitarstjórna. Sveitarfélög munu jafnframt hvetja fyrirtæki í sinni eigu til að leita allra leiða til að hækka ekki gjaldskrár opinberrar þjónustu sem hafa bein áhrif á vísitölu neysluverðs umfram 2,5% á árinu 2027.
  4. Samtök atvinnulífsins hvetja aðildarfyrirtæki sín til að leita allra leiða til að halda aftur af verðhækkunum og gæta í því efni að markmiðum Stöðugleikasamningsins.
  5. Síðastliðið sumar var að störfum vinnuhópur um styrkingu launatölfræði sem skilaði niðurstöðum sínum til Þjóðhagsráðs 3. september sl. Aðilar að samkomulaginu eru sammála um að ráðast skuli í heildarsöfnun launaupplýsinga frá launagreiðendum. Stjórnvöld munu hefja undirbúning að heildarsöfnun launaupplýsinga á íslenskum vinnumarkaði strax á árinu 2026 og tryggja fjármögnun verkefnisins frá og með 2027. Með þessu mun skapast mun heildstæðari upplýsingagrunnur um íslenskan vinnumarkað en með núverandi fyrirkomulagi.
  6. Á fundi Þjóðhagsráðs 3. september sl. voru jafnframt kynntir valkostir til að draga úr sjálfvirkum verðbreytingum. Aðilar að samkomulaginu munu ráðast í aðgerðir til að draga úr vægi sjálfvirkra verðbreytinga, m.a. á grundvelli þeirra valkosta sem þar voru kynntir.

Í áðurnefndri tilkynningu segir einnig að samhliða þessu muni ríkisstjórnin grípa til margvíslegra aðgerða sem eiga að stuðla að efnahagslegum og félagslegum stöðugleika, tryggja uppbyggingu hagkvæms húsnæðis, tryggja réttarbætur fyrir launafólk og leigjendur og létta byrðar á atvinnulífinu.

Þetta á að gera á sama tíma og halda á því markmiði að skila hallalausum fjárlögum árið 2027.

Enn fremur segir í tilkynningunni að ríkisstjórnin beini þeim tilmælum til stofnana og fyrirtækja ríkisins að gæta aðhalds í launaákvörðunum og hækka ekki laun umfram hækkanir í kjarasamningum.

Þá eru sveitarfélög og fyrirtæki á almennum markaði hvött til að gæta samskonar aðhalds.

Auk þeirra aðgerða sem fram koma í sameiginlegri yfirlýsingu ríkisstjórnar, ASÍ, SA og SÍS mun ríkisstjórnin ráðast í eftirfarandi aðgerðir án tafar.

Meðal annars stendur til að heimila ríkissjóði að fjármagna tímabundið stofnframlög sveitarfélaga til uppbyggingar á almennum íbúðum. Gera á breytingar á fyrirkomulagi húsaleigutrygginga, bregðast við vaxandi atvinnuleysi og ýmislegt annað.

Allar tillögurnar má sjá hér að neðan:

  1. Lagt verður fram frumvarp á haustþingi 2026 sem felur í sér að heimila ríkissjóði að fjármagna tímabundið stofnframlög sveitarfélaga til uppbyggingar á almennum íbúðum. Gert er ráð fyrir að úrræðið taki strax gildi og vari út árið 2027. Markmiðið er að fjölga á skömmum tíma hagkvæmum íbúðum innan almenna íbúðakerfisins og tryggja áframhaldandi uppbyggingu almenna íbúðakerfisins. Með þessu gerir ríkið það sem það getur til að standa við þau fyrirheit sem gefin voru við undirritun Stöðugleikasamningsins. Samhliða framlengist forgangsregla þess efnis að a.m.k. tveir þriðju hlutar þess fjármagns sem til úthlutunar er hverju sinni renni til íbúða sem ætlaðar eru tekju- og eignalágum leigjendum á vinnumarkaði og vari út árið 2027. Við lögbundna heildarendurskoðun almenna íbúðakerfisins mun ríkisstjórnin sérstaklega horfa til þess hvernig megi fjölga leiguíbúðum með viðráðanlegum húsnæðiskostnaði fyrir tekjulægri hópa á vinnumarkaði og auka skilvirkni kerfisins þannig að staðinn verði vörður um þau meginmarkmið að tryggja húsnæðisöryggi og sjálfbærni almenna íbúðakerfisins til framtíðar. Í því skyni verður meðal annars farið yfir fyrirkomulag og úthlutun stofnframlaga.
  2. Þróun barnabóta verður komið í fastar skorður til að stuðningur við barnafólk haldist stöðugur milli ára, í samræmi við stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnar. Í því skyni verður lagt fram frumvarp eigi síðar en á haustþingi 2027 um að stuðningur við barnafjölskyldur með barnabótum þróist með sama hætti milli ára og gildir um þrepamörk í tekjuskattskerfinu. Miðað er við að þetta fyrirkomulag taki gildi frá og með árinu 2028. Fram að því verður framlag ríkisins til barnabóta í samræmi við yfirlýsingu stjórnvalda í tengslum við kjarasamninga á almennum markaði frá árinu 2024 sem kallar á hækkun á fjárhæðum og skerðingamörkum barnabótakerfisins með lagabreytingu á haustþingi 2026.
  3. Lagt verður fram frumvarp á haustþingi 2026 sem felur í sér að settur verði skýrari rammi um heimildir aðila leigusamnings til að semja, við gerð leigusamnings, um reglubundnar breytingar leigufjárhæðar á samningstíma. Breytingarnar hafa það að markmiði að stuðla að stöðugleika og auknum fyrirsjáanleika um leiguverð milli mánaða. Lagt er til að mánaðarleg vísitölutenging leigufjárhæðar, bæði vegna útleigu á íbúðarhúsnæði eða öðru húsnæði sem leigt er til íbúðar, verði óheimil og að áskilið verði að a.m.k. 12 mánuðir líði milli hækkana á leigufjárhæð.
  4. Lagt verður fram frumvarp eigi síðar en á vorþingi 2027 um breytingar á fyrirkomulagi húsaleigutrygginga, að höfðu samráði við helstu hagaðila á leigumarkaði. Markmiðið er að styrkja réttarvernd leigjenda og leigusala, skýra reglur um meðferð tryggingarfjár, einfalda kröfu- og uppgjörsferla og auka fyrirsjáanleika um endurgreiðslu trygginga. Jafnframt er stefnt að því að fyrirbyggja ágreining og fækka málum sem berast kærunefnd húsamála.
  5. Stjórnvöld og aðilar vinnumarkaðarins geri greiningu á þróun húsnæðisstuðningskerfa fyrir eigendur húsnæðis. Niðurstöður liggi fyrir vorið 2027. Samtímis verður starfi starfshóps um nýtt húsnæðislánakerfi hraðað.
  6. Ráðist verður í sérstakt átak í einföldun regluverks til að létta byrðar í atvinnurekstri og draga úr kostnaðarþrýstingi. Tillögur verða mótaðar í sérstökum samráðshópi ríkis og aðila vinnumarkaðarins og liggi fyrir í janúar 2027. Ráðgjafarnefnd um opinberar eftirlitsreglur verður jafnframt rædd á sama vettvangi og hugsanlega endurvakin í nýrri mynd.
  7. Lagt verður fram frumvarp eigi síðar en á vorþingi 2027 sem felur í sér viðurlög við brotum á lágmarkskjörum launafólks samkvæmt kjarasamningi. Með lágmarkskjörum kjarasamninga er átt við öll þau laun og starfskjör sem hverjum starfsmanni ber samkvæmt þeim kjarasamningi sem um starf hans gildir, meðal annars á grundvelli starfs, starfsaldurs, starfsreynslu, vinnutíma og vinnufyrirkomulags. Frumvarpið markar kaflaskil í baráttunni gegn félagslegum undirboðum hér á landi með því að kveða á um einstaklingsbundinn rétt til févítis á vangreidd lágmarkskjör. Breytingin muni sérstaklega styrkja stöðu viðkvæmra hópa á vinnumarkaði og um leið stuðla að heilbrigðara samkeppnisumhverfi fyrirtækja.
  8. Aðilar vinnumarkaðarins og stjórnvöld hafa undanfarið ár rætt og rýnt með hvaða hætti fyrirkomulagi örorkutrygginga verður best við komið með það að markmiði að jafna réttindaávinnslu til ellilífeyris milli lífeyrissjóða, koma í veg fyrir víxlverkun og núning milli kerfa og auka snemmbæran stuðning til að koma í veg fyrir brotthvarf af vinnumarkaði. Niðurstaða þeirrar rýni er að greina áfram og útfæra hugmyndina um stofnun nýs örorkubótasjóðs vinnumarkaðarins. Stjórnvöld styðja þá nálgun sem aðilar vinnumarkaðarins hafa lagt til grundvallar við mótun ramma um örorkubótasjóð og skuldbinda sig til að styðja við áframhaldandi þróun á hugmyndum og útfærslu sjóðsins með það að markmiði að framtíðarlausn finnist eins fljótt og auðið er. Viðræðunefnd aðila sem starfandi hefur verið mun í því miði skipa sérfræðihóp sem hefja mun störf í október 2026 og skila niðurstöðum sínum eigi síðar en 1. mars 2027. Þar til viðunandi framtíðarlausn finnst verður viðhaldið núverandi fyrirkomulagi til að draga úr víxlverkun og framlagi ríkisins til að jafna örorkubyrði lífeyrissjóða.
  9. Vinna við smíði frumvarps um innleiðingu keðjuábyrgðar í stærri verklegum framkvæmdum verður hafin haustið 2026. Starfshópur á vegum félags- og húsnæðismálaráðuneytisins verði settur á fót með fulltrúum frá ASÍ og SA sem skila mun ráðherra drögum að lagafrumvarpi eigi síðar en 1. mars 2027. Stefnt er að framlagningu frumvarps á Alþingi að hausti sama ár.
  10. Stjórnvöld, í samstarfi við aðila vinnumarkaðarins, vinni fyrir lok árs 2026 viðbragðsáætlun gegn vaxandi atvinnuleysi með áherslu á aukinn stuðning og virkar vinnumarkaðsaðgerðir sem miði að því að draga úr langtímaatvinnuleysi og koma í veg fyrir brotthvarf af vinnumarkaði.
  11. Frumvarp um endurskoðun á lögum um Ábyrgðarsjóð launa verður unnið í samstafi við aðila vinnumarkaðsins.
  12. Mælist ársverðbólga í lok október 2027 yfir 3,8% verða greiddar einskiptisvaxtabætur til skuldsettra heimila í upphafi árs 2028 upp á 1,3 milljarða króna, 2 milljarða króna mælist verðbólga yfir 4,0% eða 3 milljarða króna ef ársverðbólgan mælist yfir 5% á þeim tímapunkti.
  13. Lagt verður fram frumvarp eigi síðar en á vorþingi 2027 sem felur í sér að lágmarkskjör launafólks á íslenskum vinnumarkaði falli ekki niður vegna tómlætis. Með lágmarkskjörum kjarasamninga er átt við öll þau laun og starfskjör sem hverjum starfsmanni ber samkvæmt þeim kjarasamningi sem um starf hans gildir, meðal annars á grundvelli starfs, starfsaldurs, starfsreynslu, vinnutíma og vinnufyrirkomulags.
#aðgerðirnar #eru #fara #sem #þetta


Upprunaleg slóð:
https://www.visir.is/g/20262945863d/thetta-eru-adgerdirnar-sem-fara-a-i

📰 Aðrar fréttir

Yngvi Ómar Sigrúnarson skrifar: Leigubremsa er almannahagsmunamál
📅 08.10.2026 👁️ 1
Yngvi Ómar Sigrúnarson skrifar: Leigubremsa er almannahagsmunamál
Fyrirhugað frumvarp um breytingar á húsaleigulögum sem nú er rætt á Alþingi er ekki bara leigjendum þessa lands til hagsbóta, heldur almenningi sem he...
Dómur Landsréttar yfir Margréti Löf – Gátu ekki tekið afstöðu til kröfunnar um að hún yrði svipt arfi
📅 08.10.2026 👁️ 1
Dómur Landsréttar yfir Margréti Löf – Gátu ekki tekið afstöðu til kröfunnar um að hún yrði svipt arfi
Formsatriði varð til þess að Landsréttur vísaði frá kröfu hálfbróður Margrétar Löf um að hún yrði svipt erfðarétti yfir föður sínum. Landsréttur staðf...
Einar rifjar upp eftirminnileg kynni sín af Míkhaíl Gorbatsjov - Þetta kom honum mest á óvart
📅 08.10.2026 👁️ 1
Einar rifjar upp eftirminnileg kynni sín af Míkhaíl Gorbatsjov - Þetta kom honum mest á óvart
Einar Bárðason, framkvæmdastjóri og viðburðahaldari með meiru, er þakklátur fyrir að hafa fengið að kynnast Míkhaíl Gorbatsjov, fyrrverandi forseta So...
Deilt um leigubremsu – „Stjörnugalin djöflasýra sem stenst enga skoðun“
📅 08.10.2026 👁️ 1
Deilt um leigubremsu – „Stjörnugalin djöflasýra sem stenst enga skoðun“
Þung orð hafa verið látin falla um leigubremsufrumvarp Ragnars Þórs Ingólfssonar, félags- og húsnæðismálaráðherra. Seðlabankastjóri hefur lýst leigubr...
Fyrrverandi þingmaður Framsóknar kaupir hafnfirskt bæjarblað
📅 08.10.2026 👁️ 1
Fyrrverandi þingmaður Framsóknar kaupir hafnfirskt bæjarblað
Fyrrverandi þingmaður Framsóknar kaupir hafnfirskt bæjarblað Ág­úst Bjarni Garð­ars­son hef­ur keypt bæj­ar­blað­ið Fjarð­ar­frétt­ir í gegn­um ráð­gj...
Þrettán aðgerðir ríkisstjórnarinnar til að bjarga kjarasamningum
📅 08.10.2026 👁️ 1
Þrettán aðgerðir ríkisstjórnarinnar til að bjarga kjarasamningum
Þrettán aðgerðir ríkisstjórnarinnar til að bjarga kjarasamningum Skuld­sett heim­ili fá sam­tals 1,3 millj­arða króna í ein­skiptis­vaxta­bæt­ur verði...
Sextán ára dómur yfir Margréti Löf staðfestur
📅 08.10.2026 👁️ 1
Sextán ára dómur yfir Margréti Löf staðfestur
Landsréttur hefur staðfest dóm Héraðsdóms um 16 ára fangelsi yfir Margréti Höllu Hansdóttur Löf, fyrir að hafa ráðið föður sínum bana á heimili þeirra...
Ók lyfjaður á gangandi veg­faranda - Vísir
📅 08.10.2026 👁️ 2
Ók lyfjaður á gangandi veg­faranda - Vísir
Þetta kemur fram í dagbók lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu en málinu er ekki lýst frekar. Í sama hverfi var tilkynnt um innbrot og einnig tilkynnt um...
Why the search warrants were deemed unlawful and what happens next?
📅 08.10.2026 👁️ 1
Why the search warrants were deemed unlawful and what happens next?
Special correspondent Lucy Manning explains why the Hight Court has ruled that search warrants used to search Mr Mountbatten-Windsor's home were unlaw...
Christa Pike komin á fætur eftir misheppnaða aftöku
📅 08.10.2026 👁️ 1
Christa Pike komin á fætur eftir misheppnaða aftöku
Christa Pike, sem lifði af tvær aftökutilraunir með banvænni sprautu í Tennessee-ríki í Bandaríkjunum, er komin á fætur og farin að ganga um sjúkrasto...
Allt brjálað í fjölbýlishúsi í miðborginni eftir að leyft var að veitingastaður yrði opnaður
📅 08.10.2026 👁️ 2
Allt brjálað í fjölbýlishúsi í miðborginni eftir að leyft var að veitingastaður yrði opnaður
Eigendur fjögurra íbúða í fjölbýlishúsi við Vesturgötu í miðborg Reykjavíkur hafa lagt fram kæru til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála vegna...
Nauðgað í kosningabaráttu – Vaknaði og sá manninn draga út skaufann
📅 08.10.2026 👁️ 2
Nauðgað í kosningabaráttu – Vaknaði og sá manninn draga út skaufann
Frambjóðandi Demókrataflokksins í Arizóna fylki greinir frá því að henni hafi verið nauðgað í kosningabaráttu. Ókunnur maður rotaði hana og byrjaði sí...
Myndband sýnir ungmenni skemma bíl í Stórholti
📅 08.10.2026 👁️ 2
Myndband sýnir ungmenni skemma bíl í Stórholti
Fjölmiðlar hafa í dag greint frá skemmdaverkum á bílum í Vesturbæ Reykjavíkur en hakakross var rispaður í hurð eins bílsins. Þrír bílar voru rispaðir ...
Bein út­sending: For­sætis­ráð­herra boðar til blaða­manna­fundar - Vísir
📅 08.10.2026 👁️ 2
Bein út­sending: For­sætis­ráð­herra boðar til blaða­manna­fundar - Vísir
Samkomulag náðist á milli VR, Fagfélaganna og LÍV annars vegar og Samtaka atvinnulífsins hins vegar um að kjarasamningar héldu rétt fyrir klukkan fjög...
Dag­skrá af­lýst í dag og ó­ljóst hvernig ræðukeppnin fer fram - Vísir
📅 08.10.2026 👁️ 2
Dag­skrá af­lýst í dag og ó­ljóst hvernig ræðukeppnin fer fram - Vísir
„Við eigum eftir að senda tölvupóst á nemendur og forráðamenn,“ segir Sólveig Guðrún Hannesdóttir, rektor MR, í samtali við Vísi og bætir við að nemen...
Bilun í símkerfi hefur víðtæk áhrif í Noregi
📅 08.10.2026 👁️ 2
Bilun í símkerfi hefur víðtæk áhrif í Noregi
Umfangsmikil bilun er í norska farsímakerfinu. Vegna bilunarinnar getur reynst erfitt fyrir almenning að ná sambandi við neyðarnúmer viðbragðsaðila.Bi...
Samningar náðust á síðustu mínútu
📅 08.10.2026 👁️ 2
Samningar náðust á síðustu mínútu
„Það er tvennt sem kemur til til þess að ég geti gengið sátt frá borði,“ sagði Halla Gunnarsdóttir formaður VR stuttu eftir að tilkynnt var að kjarasa...
Kjarasamningar halda: Vaxtabótaauki meðal höfuðlausna
📅 08.10.2026 👁️ 2
Kjarasamningar halda: Vaxtabótaauki meðal höfuðlausna
Kjarasamningar halda: Vaxtabótaauki meðal höfuðlausna Vaxta­bóta­auki sem Kristrún Frosta­dótt­ir for­sæt­is­ráð­herra lagði til skipti sköp­um við að...
Geta Íslendingar eignað sér nýja nóbelsverðlaunahafann? - „Mér skilst að þingmenn Miðflokksins séu búin að leggja inn fyrirspurn“
📅 08.10.2026 👁️ 3
Geta Íslendingar eignað sér nýja nóbelsverðlaunahafann? - „Mér skilst að þingmenn Miðflokksins séu búin að leggja inn fyrirspurn“
Eins og kunnugt er var tilkynnt í morgun að ljóðskáldið Anne Carson hefði hlotið nóbelsverðlaunin í bókmenntum. Hún er frá Kanada en hefur undanfarin ...
Ferðamönnum frá Ísrael mismunað vegna uppruna á íslenskum veitingastað – Neitað um þjónustu og vísað á dyr
📅 08.10.2026 👁️ 3
Ferðamönnum frá Ísrael mismunað vegna uppruna á íslenskum veitingastað – Neitað um þjónustu og vísað á dyr
Ónefndur veitingastaður á Íslandi gerðist sekur um mismunum á grundvelli þjóðernisuppruna síðsta sumar þegar pari frá Ísrael var neitað um þjónustu. Þ...
Margrét Löf heldur arfinum eftir föðurinn sem hún myrti
📅 08.10.2026 👁️ 3
Margrét Löf heldur arfinum eftir föðurinn sem hún myrti
Landsréttur staðfesti í dag 16 ára fangelsisvist Margrétar Höllu Hansdóttur Löf sem banaði föður sínum á heimili fjölskyldunnar við Súlunes á Arnarnes...
Sorgleg staðreynd um systurnar þrjár sem drukknuðu við strönd Brighton
📅 08.10.2026 👁️ 3
Sorgleg staðreynd um systurnar þrjár sem drukknuðu við strönd Brighton
Þrjár systur sem fundust látnar í sjónum við Brighton á Englandi í maí sviptu sig lífi, samkvæmt niðurstöðu réttarrannsóknar sem lauk í dag, 8. októbe...
Spjallið með Frosta Logasyni | Kolbeinn Stefánsson: Þegar pólitík ræður vísindunum – og fjölmiðlar gleypa allt
Alaska og Flóni hætt saman - Vísir
📅 08.10.2026 👁️ 3
Alaska og Flóni hætt saman - Vísir
Þetta herma heimildir fréttastofu en þau eru þó enn góðir vinir. Samband þeirra varð opinbert í apríl á þessu ári og höfðu þau verið vinir í dágóða st...
Staðfesta fyrsta dauðsfallið vegna ebólu í Kenía
📅 08.10.2026 👁️ 3
Staðfesta fyrsta dauðsfallið vegna ebólu í Kenía
Yfirvöld í Kenía hafa staðfest fyrsta dauðsfallið vegna ebólu-smits. Alþjóðaheilbrigðisstofnunin staðfestir að tilfellið sé það fyrsta sem greinist af...
Loftslagstilraun hefst í Hval­firði á næstu dögum - Vísir
📅 08.10.2026 👁️ 3
Loftslagstilraun hefst í Hval­firði á næstu dögum - Vísir
Sérfræðingar á vegum bæði Hafrannsóknastofnunar og Umhverfis- og orkustofnunar veittu jákvæðar umsagnir um umsókn rannsóknarfélagsins Rastar um tilrau...
Margrét Löf í sex­tán ára fangelsi en heldur föðurarfinum - Vísir
📅 08.10.2026 👁️ 3
Margrét Löf í sex­tán ára fangelsi en heldur föðurarfinum - Vísir
Landsréttur kvað upp dóm þess efnis klukkan 15 á bak við luktar dyr. Dómurinn hefur ekki verið birtur og því liggja forsendur hans ekki fyrir að svo s...
Saga Sig og Villi nagl­bítur eignuðust dóttur - Vísir
📅 08.10.2026 👁️ 3
Saga Sig og Villi nagl­bítur eignuðust dóttur - Vísir
„Dóttir okkar Sögu mætti yfirveguð og fullkomin þ. 27.09.26 kl. 12:34,“ skrifar Villi í færslu á samfélagsmiðlum og birtir nokkrar myndir af dótturinn...
Veitinga­maður sektaður um tvö hundruð milljónir - Vísir
📅 08.10.2026 👁️ 3
Veitinga­maður sektaður um tvö hundruð milljónir - Vísir
Landsréttur kvað upp dóm þess efnis klukkan 15 en hann hefur ekki verið birtur og því liggja forsendur hans ekki fyrir. Í héraði var Stefán sömuleiðis...
Stofna samtök sveitarfélaga í landbúnaði
📅 08.10.2026 👁️ 3
Stofna samtök sveitarfélaga í landbúnaði
Mikil fundahöld eru á vegum sveitarfélaga þessa dagana í Reykjavík. Aðalfundur Jöfnunarsjóðs var í gær og í dag hefst árleg fjármálaráðstefna í Vör, f...
Guðmundur Felix fékk slæmar fréttir: „Þetta verður flóknara en það leit út fyrir í upphafi“
📅 08.10.2026 👁️ 3
Guðmundur Felix fékk slæmar fréttir: „Þetta verður flóknara en það leit út fyrir í upphafi“
Guðmundur Felix Grétarsson segir að það sé flóknara en það hafi litið út fyrir í upphafi að losna við krabbameinið úr nefinu. Fékk hann þær slæmu frét...
Barnastjarnan sér eftir brjóstaminnkuninni þegar hún var 15 ára
📅 08.10.2026 👁️ 3
Barnastjarnan sér eftir brjóstaminnkuninni þegar hún var 15 ára
Leikferill barnastjörnunnar Raven-Symoné hófst í The Cosby Show og hún varð síðar fræg hjá Disney Channel með eigin sjónvarpsþætti, That's So Raven, s...
„Þegar menn ná ekki saman þýðir það ekki að menn hafi engu spilað út“
📅 08.10.2026 👁️ 3
„Þegar menn ná ekki saman þýðir það ekki að menn hafi engu spilað út“
Framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins segir ekki rétt að samtökin hafi ekki komið til móts við VR, LÍV og fagfélögin í kjaraviðræðum líkt og formaðu...
Two men arrested on suspicion of trespass at RAF base
📅 08.10.2026 👁️ 3
Two men arrested on suspicion of trespass at RAF base
Police say the suspects are Latvian nationals aged 36 and 32.
RAF Molesworth: Men arrested on suspicion of trespass at US base
📅 08.10.2026 👁️ 1
RAF Molesworth: Men arrested on suspicion of trespass at US base
Police say they apprehended two Latvian men at about 02:00 BST while they were inside the perimeter.
Áhyggjur af ríkisskuldum Frakka: „Enginn frír hádegisverður“
📅 08.10.2026 👁️ 3
Áhyggjur af ríkisskuldum Frakka: „Enginn frír hádegisverður“
Áhyggjur af ríkisskuldum Frakka: „Enginn frír hádegisverður“ Vext­ir af rík­is­lán­um Frakk­lands eru komn­ir á sama stig og síð­ast í al­þjóð­legu fj...
Áform Bandaríkjanna, geimkapphlaup og loftslagsmál á dagskrá Hringborðs norðurslóða
📅 08.10.2026 👁️ 3
Áform Bandaríkjanna, geimkapphlaup og loftslagsmál á dagskrá Hringborðs norðurslóða
Hringborð norðurslóða, þing Arctic circle hefst í Hörpu í dag. Þar verða um 200 málstofur og um 700 ræðumenn. Meðal annars verður fjallað um áform Ban...
„Það er stormur í dag“
📅 08.10.2026 👁️ 3
„Það er stormur í dag“
Formaður VR segir að stéttarfélagið og fagfélögin hafi teygt sig langt nú þegar í kjaraviðræðum við Samtök atvinnulífsins. Nú velti framhaldið á samtö...
Breska lögreglan viðurkennir að húsleitarheimildir voru ólögmætar
📅 08.10.2026 👁️ 3
Breska lögreglan viðurkennir að húsleitarheimildir voru ólögmætar
Lögreglan í Thames Valley í Bretlandi hefur viðurkennt að þær leitarheimildir, sem voru notaðar til að leita á heimilum Andrews Mountbatten-Windsors, ...
Máttu ekki leita hjá fyrr­verandi prinsi vegna Epstein-tengsla - Vísir
📅 08.10.2026 👁️ 3
Máttu ekki leita hjá fyrr­verandi prinsi vegna Epstein-tengsla - Vísir
Húsleit var gerð hjá Andrew Mountbatten-Windsor, sem áður gekk undir titlinum Andrés prins, í tengslum við uppljóstranir um tengsl hans við Jeffrey Ep...
Sannleikurinn á bak við sögusagnir um afsökunarbeiðni Harry og Markle
📅 08.10.2026 👁️ 3
Sannleikurinn á bak við sögusagnir um afsökunarbeiðni Harry og Markle
Sussex-hertogahjónin Harry prins og Meghan Markle ætla ekki að biðja Vilhjálms, bróður Harry, og eiginkonu hans; Katrínu Middleton, afsökunar á viðtal...
Ekki rétt sem Halla segir - Vísir
📅 08.10.2026 👁️ 3
Ekki rétt sem Halla segir - Vísir
Bjarni Benediktsson ræddi við fjölmiðla áður en fundurinn hófst. Hann sagði það verða að koma í ljós hvað gerist á fundinum. Eins og fram hefur komið ...
Fyrrverandi landsliðskona greinir frá svimandi kostnaði við íþróttir barnanna – „Rétt tæp milljón í æfingagjöld“
📅 08.10.2026 👁️ 3
Fyrrverandi landsliðskona greinir frá svimandi kostnaði við íþróttir barnanna – „Rétt tæp milljón í æfingagjöld“
Rakel Dögg Bragadóttir, fyrrverandi landsliðskona í handbolta, greinir frá svimandi kostnaði við íþróttaiðkun barna hennar þriggja. Þarf hún að greiða...
Stærstu sveitarfélög landsins öll rekin með halla
📅 08.10.2026 👁️ 3
Stærstu sveitarfélög landsins öll rekin með halla
Öll sex fjölmennustu sveitarfélög landsins voru rekin með halla á fyrstu sex mánuðum ársins, að minnsta kosti þegar kemur að A-hluta rekstrarins, þess...
Verð­launin ráð­gáta og til­finningin klikkuð - Vísir
📅 08.10.2026 👁️ 3
Verð­launin ráð­gáta og til­finningin klikkuð - Vísir
Nóbelsverðlaunin í bókmenntum voru tilkynnt klukkan 11 í morgun og bættist Anne Carson í hóp Íslendinga sem hlotið hafa bókmenntaverðlaunin ásamt Hall...
Dæmi um falskt jákvætt í sprengiefnaskimun eftir ferð í baðlón
📅 08.10.2026 👁️ 3
Dæmi um falskt jákvætt í sprengiefnaskimun eftir ferð í baðlón
Erlendir ferðamenn sem heimsóttu baðlón í heimsókn sinni til landsins hafa fengið falskt jákvætt í skimun eftir sprengiefnum eða hættulegum efnum á Ke...
Zelensky ætlar að hefna fyrir sprengjuárás á tvær rútur í Kramatorsk
📅 08.10.2026 👁️ 3
Zelensky ætlar að hefna fyrir sprengjuárás á tvær rútur í Kramatorsk
30, hið minnsta, voru drepnir í sprengjuárás á tvær rútur í Kramatorsk-borg í Úkraínu í dag.Borgin er við víglínuna í austurhluta Úkraínu.Vadym Filash...
Andrew search warrants were unlawful, court hears
📅 08.10.2026 👁️ 3
Andrew search warrants were unlawful, court hears
The former prince is taking legal action against Thames Valley Police after his homes were searched earlier this year.
Warrants used to search Andrew's homes were unlawful, court says
📅 08.10.2026 👁️ 3
Warrants used to search Andrew's homes were unlawful, court says
A criminal investigation into the former prince continues and police have retained material seized from his homes.
Girl's death prompts call for allergy management ratings
📅 08.10.2026 👁️ 3
Girl's death prompts call for allergy management ratings
Mia St Hilaire had a tree nut allergy and suffered an anaphylactic shock after drinking a milkshake.